Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
Samþykkt var í upphafi fundar að bæta máli nr. 1902180 á dagskrána með afbrigðum.
1.Virkun í Tungudal - kynning
Málsnúmer 1902202Vakta málsnúmer
Fulltrúar Orkusölunnar komu á fund byggðarráðs til að kynna fyrirhuguð virkjunaráform í Tungudal í Fljótum.
Byggðarráð þakkar fulltrúum Orkusölunnar fyrir kynningu á mögulegum virkjunarkostum í Tungudal í Fljótum. Málið hefur ekki áður komið inn á borð byggðarráðs enda málið á algeru frumstigi. Eftir fyrstu kynningu á málinu er ljóst að meta þarf áhrif slíkrar framkvæmdar fyrir Fljótin og Skagafjörð, en virkjunin myndi framleiða um 2 MW af rafmagni. Ljóst er afla þarf frekari gagna og fara í meiri rannsóknarvinnu á svæðinu ætli forsvarsmenn þessa verkefnis að halda með það áfram.

2.Dragnótaveiðar á Skagafirði
Málsnúmer 1901120Vakta málsnúmer
Umræður um dragnótaveiðar á Skagafirði og undirbúningur fyrir fund með sjávarútvegsráðherra.
3.Fyrirspurn varðandi land
Málsnúmer 1901154Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá 853. fundi byggðarráðs þann 16. janúar 2019 og því vísað til umsagnar landbúnaðarnefndar. Fyrir fundinum liggur bókun og umsögn 203. fundar landbúnaðarnefndar frá 25. febrúar 2019.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til veitunefndar til umsagnar að því leiti er snýr að jarðhitaréttindum jarðarinnar.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til veitunefndar til umsagnar að því leiti er snýr að jarðhitaréttindum jarðarinnar.
4.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2019
Málsnúmer 1810026Vakta málsnúmer
Erindinu vísað frá 63. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 8. febrúar 2019. Tekin fyrir tillaga Berglindar Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, um breytingu á gjaldskrá Byggðasafnsins fyrir 2019. Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti að lögheimilisíbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps geti keypt aðgangsmiða að safninu sem gildir í heilt ár óháð fjölda heimsókna. Byggðarráð hvetur íbúa sveitarfélaganna til að nýta þennan möguleika. Nefndin vísar erindinu til staðfestingar hreppsnefndar Akrahrepps.
5.Umsagnarbeiðni tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030
Málsnúmer 1902061Vakta málsnúmer
Málið áður kynnt á 857. fundi byggðarráðs þann 13. febrúar 2019. Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 7. febrúar 2019 frá nefndasviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, 509. mál.
Lögð fram drög að umsögn um tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda framlagða umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lögð fram drög að umsögn um tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda framlagða umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
6.Umsagnarbeiðni vegna tímabundins áfengisleyfis v fjáröflunar
Málsnúmer 1902180Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur úr máli 1902342, dagsettur 21. febrúar 2019 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn Sigmundar Jóhannessonar, f.h. Félagsheimilisins Höfðaborgar, um tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga nr. 85/2007, vegna fjáröflunarskemmtunar sem fyrirhugað er að halda þann 16.03. 2019 n.k. í Höfðaborg.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
7.Tillaga, vinna framkvæmdaáætlun fyrir Alexandersflugvöll
Málsnúmer 1811144Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá 845. fundar byggðarráðs þann 20. nóvember 2018. Lagt fram verðtilboð frá verkfræðistofunni Mannviti í verkfræðihönnun.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda upplýsingar til stjórnar SSNV varðandi verkefnið.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda upplýsingar til stjórnar SSNV varðandi verkefnið.
8.Vinabæjarmót í Kristianstad 2019
Málsnúmer 1812118Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar boðsbréf dagsett 8. febrúar 2019, frá Kristianstad í Svíþjóð, vinabæ sveitarfélagsins. Boðið er til vinabæjamóts dagana 8. og 9. maí 2019.
Fundi slitið - kl. 12:50.