Skipulags- og byggingarnefnd - 342
Málsnúmer 1903009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 382. fundur - 17.04.2019
Fundargerð 342. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 382. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E Einarsson, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 342 Fundurinn er haldinn sameiginlega af skipulags- og byggingarnefnd og umhverfis og samgöngunefnd. Fundurinn er upphafsfundur vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag fyrir Sauðárkrókshöfn. Til fundar var boðið hagsmunaaðilum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem starfsemi hafa á og við höfnina.
Fundurinn var vel sóttur og að loknum fróðlegum framsöguerindum og kynningum voru almennar umræður.
Í fundarlok var fundarmönnum þökkuð góð fundarseta og góðar og gagnlega ábendingar og tillögur.
Bókun fundar Afgreiðsla 342. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 382. fundi sveitarstjórnar 17. apríl 2019 með níu atkvæðum.