Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 896

Málsnúmer 2001007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 393. fundur - 12.02.2020

Fundargerð 896. fundar byggðarráðs frá 15. janúar 2020 lögð fram til afgreiðslu á 393. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Sveitarfélagið auglýsti lóð 24 á Nöfum, landnúmer 143965, til leigu í desember 2019. Alls bárust níu umsóknir um lóðina.
    Að fenginni umsögn Fjáreigendafélags Sauðárkróks samþykkir byggðarráð að úthluta Sigurði Steingrímssyni lóð 24 á Nöfum frá og með 1. janúar 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Sveitarfélagið auglýsti lóð 01 á Nöfum, landnúmer 218100, til leigu í desember s.l. Alls bárust tíu umsóknir um lóðina.
    Að fenginni umsögn Fjáreigendafélags Sauðárkróks samþykkir byggðarráð að úthluta Herði Sigurjónssyni lóð 01 á Nöfum frá og með 1. janúar 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Lagður fram viðauki númer 9 við fjárhagsáætlun 2019. Lagt er til að framlag til málaflokks 07-Bruna- og almannavarnir verði hækkað um 3,5 milljónir króna. Hækkun framlagsins verður mætt með lækkun á launapotti á málaflokki 27-Óvenjulegir liðir um sömu fjárhæð.
    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr 13 "Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2019-2023". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Lagðar fram reglur sveitarfélagsins um heilsuræktarstyrki til starfsmanna árið 2020.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr 12. Heilsuræktarstyrkur 2020 reglur. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Málið áður á dagskrá 895. fundar byggðarráðs 9. janúar 2020. Undir þessum dagskrárlið komu Ari Jóhann Sigurðsson formaður heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra og Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi Norðurlands vestra, til viðræðu.
    Byggðarráð stefnir á að eiga fund með forstjóra N1 ehf. í næstu viku.
    Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 18. desember 2019 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 317/2019, "Drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð". Umsagnarfrestur er framlengdur til og með 20.01.2020. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 9. janúar 2020, að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn í samráði við önnur sveitarfélög á Norðurlandi vestra sem eiga hagsmuni að gæta. Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 6. janúar 2020 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 2/2020, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.". Umsagnarfrestur er til og með 20.01.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 896 Lögð fram til kynningar drög að reglum vegna auglýsinga á/í íþróttamannvirkjum og íþrótasvæðum sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 896. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.