Byggðarráð Skagafjarðar - 912
Málsnúmer 2004014F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 398. fundur - 06.05.2020
Fundargerð 912. fundar byggðarráðs frá 29. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu á 398. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Erindið einnig rætt á fyrri fundum byggðarráðs. Farið yfir stöðu mála. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Lagður fram ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana fyrir árið 2019. Kristján Jónasson lögg. endurskoðandi hjá KPMG ehf. fór yfir og kynnti ársreikninginn fyrir fundarmönnum. Undir þessum dagskrárlið sat Ásta Ólöf Jónsdóttir aðalbókari fundinn. Sveitarstjórnarfulltrúarnir Álfhildur Leifsdóttir, Jóhanna Ey Harðardóttir, Inga Huld Þórðardóttir og Axel Kárason tóku þátt í fundinum undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundarbúnað.
Byggðarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 15 Ársreikningur 2019 - Sveitarfélagið Skagafjörður. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Lagt fram fjárfestingaryfirlit ársins 2019.
Byggðarráð samþykkir að yfirlitinu verði vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 12 Fjárfestingar á árinu 2019 - upplýsingagjöf. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Lagður fram viðauki númer fjögur við fjárhagsáætlun ársins 2020. Viðaukinn gengur út á hækkun framkvæmdafjár til Hafnarsjóðs Skagafjarðar um 31,7 mkr. og hækkun á heimild eignasjóðs til að taka langtímalán að fjárhæð 32 mkr. Heildaráhrif á rekstur samstæðu sveitarfélagsins eru hækkun rekstrargjalda um 1,3 mkr. og lækkun á handbæru fé um 150 þkr.
Byggðarráð samþykkir að vísa viðaukanum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 13 Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2020-2024. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Lögð fram 2. útg. af Húsnæðisáætlun 2020-2024 fyrir Sveitarafélagið Skagafjörð sem unnin var af VSÓ ráðgjöf. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Bjarni Jónsson (Vg og óháð) óskar eftir að fá upplýsingar um stöðu fráveituframkvæmda að Hólum í Hjaltadal.
Málið rætt og farið yfir minnisblað frá Eflu verkfræðistofu sem og næstu skref í málinu. Byggðarráð ítrekar mikilvægi þess að framkvæmdin verði kláruð og mun eiga samtal við mennta- og menningarráðuneytið þar sem verkefnið er á þeirra ábyrgð. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum.
- .8 2004209 Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitniByggðarráð Skagafjarðar - 912 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. apríl 2020 þar sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025, 643. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 912 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. apríl 2020 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 89/2020, "Drög að reglugerð um undanþágunefnd kennara". Umsagnarfrestur er til og með 08.05.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 912. fundar byggðarráðs staðfest á 398. fundi sveitarstjórnar 6. maí 2020 með níu atkvæðum.