Umsókn um námsvist utan lögheimilis
Málsnúmer 2005022
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 156. fundur - 12.05.2020
Lögð fram umsókn frá foreldri um að barn viðkomandi fái að stunda nám í öðru sveitarfélagi skólaárið 2020-2021. Fræðslunefnd sér sér ekki fært að verða við erindinu og bendir á að Sveitarfélagið Skagafjörður rekur grunnskóla í skólahverfi viðkomandi og sér börnum fyrir skólaakstri lögum samkvæmt. Tekið er fram að fram til þessa hefur einungis verið veitt heimild fyrir tímabundinni skólagöngu í öðrum sveitarfélögum vegna t.d. námsdvalar foreldra, vegna veikinda eða vegna sérstakra félagslegra aðstæðna.