Fara í efni

Hólar-Undir Byrðunni - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2005147

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 104. fundur - 19.05.2020

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 15. maí 2020 frá sýslumannsembætti Norðurlands vestra, úr máli 2005118. Óskað er umsagnar um umsókn dagsetta 8. maí 2020 þar sem Gústaf Gústafsson kt. 070173-5739, f.h. Hjaltadalur ferðaþjónusta ehf. kt. 180520-0250 sækir um leyfi til að reka veitingastað í flokki II í húsnæði Hólaskóla, fasteignanúmer 214278. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 917. fundur - 03.06.2020

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembætti Norðurlands vestra, úr máli 2005118 og dagsettur 16. maí 2020. Með umsókn dagsettri 08.05.2020 sækir Gústaf Gústafsson, f.h. Hjaltadalur ferðaþjónusta ehf., kt. 480520-0250, um leyfi til að reka veitingastað í flokki II í Hólaskóla, í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Fastanúmer 214-2788.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.