Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 384

Málsnúmer 2008015F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 401. fundur - 26.08.2020

Fundargerð 384. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 25. ágúst 2020 lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Forsvarsmenn eigenda Aðalgötu 16b,á Sauðárkróki mæta til fundar og kynna fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu og svæði umhverfis húsið. Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið, og felur skipulagsfulltrúa að vinna að málinu með umsækjendur. Bókun fundar Afgreiðsla 384. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 401. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2020 með níu atkvæðum
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Páll Friðriksson kt. 230867-3809 og Guðný H. Axelsdóttir kt. 020267-3539, sækja um leyfi til að breikka bílaplan við Viðigrund 11 um 3m til norðurs, að lóðarmörkum Víðigrundar 9, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið, með fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 384. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 401. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2020 með níu atkvæðum
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir 3-4 rannsóknarborholum (hitastigsholum) í landi Reykjarhóls og Varmahlíðar, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Áætlað er að bora niður á allt að 100m dýpi. Fyrir liggur úttekt ISOR á jarðhitakerfi í Reykjarhóli frá 2016.
    Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að hún feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012. Gerður er fyrirvari um að fyrir liggi samþykki viðkomandi landeigenda.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 6 Reykjarhóll Vhl. - Framkv.leyfi fyrir borholum. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Ingibjörg Sigurðardóttir lektor og deildarstjóri við Háskólann á Hólum, f.h. landeigenda Víðiness 1 og 2 auk Laufskála, leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra lagfæringa á vegslóða sem liggur frá bænum Víðinesi í Hjaltadal, fram Víðinesdal og áleiðis fram í Tungur. Framkvæmdin er unnin í samstarfi við Fjallskilasjóð Hóla- og Viðvíkurhreppa og SNÆ-LÍV (Skagafjarðardeild Landssambands íslenskra vélsleðamanna)og í samráði við Sveitarfélagið Skagafjörð.
    Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að hún feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 7 Víðinesdalur, umsókn um framkvæmdaleyfi. Lagfæring vegslóða í Víðinesdal. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Sigrún Ingvarsdóttir kt. 080971-4949 og Kristján E. Björnsson kt. 200953-5849 þinglýstir eigendur jarðarinnar Hlíð L146437 í Hjaltadal, óska eftir heimild til að skipta út úr landinu 11.4ha spildu, samkvæmt meðfylgjandi gögnum, unnum af verkfræðistofunni Stoð ehf. Innan afmörkunar spildunnar standa matshluti 02 íbúðarhús byggt 1939, matshluti 8, votheysgryfja byggð 1950, og matsshluti 09,haughús byggt 1946, og fylgja þeir útskiptri spildu. Lögbýlaréttur mun fylgja Hlíð L146437.Hlunnindi af Hjaltadalsá og vatnsréttindi skiptast jafnt á milli Hlíðar L146437 og útskiptrar spildu.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 384. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 401. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2020 með níu atkvæðum
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Steingrímur Jónsson deildarstjóri netrekstrar Rarik á Norðurlandi, sækir um f.h. Rarik, framkvæmdaleyfi fyrir raf-strenglagnir á Sauðárkróki. Í tengslum við færslu aðveitustöðvar á Sauðárkróki er nauðsynlegt að leggja nýjan streng að bænum Brennigerði og að svokallaðri fjórstæðu við Veðramót, auk strenglagna innanbæjar á Sauðárkróki. Með umsókn fylgir verklýsing ásamt uppdráttum frá verkfræðistofunni Stoð ehf. dags. 25.6.2020.
    Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að hún feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 8 Háspennustrengir innan Sauðárkróks (frá aðveitstöð Rarik að Borgarteig 10b). Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Vegna aukinna fyrirspurna um lóðir til byggingar einbýlishúsa-, parhúsa- og fjölbýlishúsa, telur Skipulags- og byggingarnefnd ástæðu til að marka stefnu um næstu skref í skipulagningu nýrra svæða. Til að mæta eftirspurn eftir lóðum leggur nefndin til eftirfarandi:
    Skipulags- og byggingarnefnd leggur áherslu á að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags íbúðabyggðar í Nestúni á Sauðárkróki. Einnig að gerð verði lóðahönnun fyrir lóðir í botni götunnar Kvistahlíð á Sauðárkróki og þær grenndarkynntar.
    Nefndin telur nauðsynlegt að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir nýja götu á Birkimel í Varmahlíð. Þá telur nefndin að gera verði deiliskipulag fyrir göturnar Sætún og Hátún ásamt Prestbakka og lóð fyrir kirkjuna og kirkjugarðinn á Hofsósi. Skipulagsfulltrúa er falið að uppfæra lista yfir þegar úthlutunarhæfar lóðir og birta á vefsíðu sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 9 Lóðamál í þéttbýli - Framtíðarskipan íbúðalóða. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Nýlokið er kynningarferli vinnslutillögu vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Vinnslutillagan var kynnt með auglýsingu skv. 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þann 1. júlí 2020 og var umsagnar og athugasemdafrestur til og með 21 ágúst 2020. Nokkrar athugasemdir og ábendingar bárust.
    Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa ásamt skipulagsráðgjafa og koma með tillögur um viðbrögð við þeim.
    Bókun fundar Afgreiðsla 384. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 401. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2020 með níu atkvæðum
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 384 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði veitt heimild til að endurnýja útrunna lóðarleigusamninga innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins, enda sé það gert í samræmi við skipulagsáætlanir viðkomandi svæða. Þá leggur Skipulags- og byggingarnefnd til á sömu forsemdum að skipulagsfulltrúa verði veitt heimild til að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins nýja lóðarleigusamninga í samræmi við skipulagsáætlanir. Ofangreint er í samræmi við heimildir sveitarstjórna til að fela starfsmanni heimild til fullnaðarafgreiðslu mála, og eru tilteknar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138 frá árinu 2011, og 6. gr. skipulagslaga nr. 123 frá árinu 2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 10. Lóðarleigusamningar. Samþykkt samhljóða.