Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 929

Málsnúmer 2009003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020

Fundargerð 929. fundar byggðarráðs frá 10. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Rætt um stöðu mála vegna lóðarúthlutunar á svokölluðum Freyjugötureit. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur undanfarið haft til umfjöllunar og athugunar mengunarslys sem tengist bensínstöð N1 að Suðurbraut 9 á Hofsósi. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
    Lagt fram tilboð frá Eflu verkfræðistofu í rannsóknir á fráveitukerfi sveitarfélagsins á Hofsósi vegna mengunarslyss. Byggðarráð samþykkir framangreint tilboð.
    Farið var yfir tilboð Eflu varðandi frekari rannsóknir á jarðveginum á svæðinu og Steini falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagðar fram rekstrarupplýsingar fyrir tímabilið janúar-júlí 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 3. september 2020 úr máli 2009060 hjá sýslumannsembætti Norðurlands vestra. Með umsókn dagsettri 02.09.2020. sækir Andrés Geir Magnússon, kt. 250572-4849, Hellulandi, 551 Sauðárkrókur, um leyfi til að reka gististað í (bílskúr), flokki II að Hellulandi, 551 Sauðárkróki. Gestafjöldi 10 manns. Fasteignanúmer 214-2393.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. ágúst 2020 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 163/2020, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019". Umsagnarfrestur er til og með 11.09.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 1. september 2020 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 167/2020, "Áform um frumvarp til breytinga á lögum um skráningu einstaklinga". Umsagnarfrestur er til og með 07.09.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 3. september 2020 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 169/2020, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013". Umsagnarfrestur er til og með 16.09.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 3. september 2020 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 170/2020, "Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum (leyfi til bráðabirgða)". Umsagnarfrestur er til og með 17.09.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 929 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi:
    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi þann 28. apríl sl. að beina því til samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga að setja á fót greiningarhóp til að vinna að tvíþættu verkefni. Annars vegar að safna upplýsingum um fjárhagsáætlanir og fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélagafyrir yfirstandandi ár, þróun þeirra og horfur og hins vegar að safna upplýsingum um einstaka þætti sem ljóst þykir að muni hafa mikil áhrif á afkomu sveitarfélaga á komandi mánuðum og misserum. Tilefnið er að bregðast við þeim aðstæðum sem myndast hafa íkjölfar Covid-19 faraldursins en ljóst er að áhrif hans verða mikil á efnahagslífið allt og þar með talið fjármál ríkis og sveitarfélaga.
    Starfshópurinn hefur nú lokið störfum og niðurstöður verið birtar í frétt á vef Stjórnarráðsins þann 28. ágúst 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 929. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.