Fara í efni

Fræðslunefnd - 159

Málsnúmer 2009007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020

Fundargerð 159. fundar fræðslunefndar frá 16. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Axel Kárason kynnti fundargerð. Jóhanna Ey Harðardóttir, Bjarni Jónsson, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Axel Kárason, Ólafur Bjarni Haraldsson, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Gísli Sigurðsson, Bjarni Jónsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Axel Kárason og Stefán Vagn Stefánsson með leyfi varaforseta, kvöddu sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 159 Í leikskólanum Ársölum eru haldnir átta starfsmannafundir yfir árið. Á fundum þessum er starfið með börnunum skipulagt og unnið að faglegum málefnum leikskólans. Fundir þessir hafa verið haldnir á mismunandi tímum í gegnum tíðina, ýmist utan daglegs vinnutíma eða á vinnutíma. Eðli málsins samkvæmt hentar það starfsfólki misvel að mæta á starfsmannafundi að hefðbundnum vinnutíma loknum og því hefur mæting á þá verið dræm. Í ljósi þessa er lagt til að skólaárið 2020-2021 verði fjórir fundir haldnir á dagvinnutíma og fjórir fundir haldnir utan dagvinnutíma. Ákvörðun þessi verður endurmetin við gerð skóladagatals skólaárið 2021-2022. Bókun fundar Afgreiðsla 159. fundar fræðslunefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 159 Borist hefur erindi foreldra þriggja ára barns um að barnið fái að fara með skólabílnum í leikskóla. Reglur sveitarfélagsins um skólaakstur í dreifbýli heimila ekki að aðrir en grunnskólanemendur ferðist með skólabílunum. Fræðslunefnd sér ekki fært að verða við þessu erindi. Bókun fundar Afgreiðsla 159. fundar fræðslunefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 159 Lagt fram yfirlit yfir nemendafjölda í leik- grunn- og tónlistarskóla í Skagafirði. Ljóst er að nemendum fjölgar nokkuð á milli ára á öllum skólastigum. Fræðslunefnd fagnar því að nemendum fjölgar í héraðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 159. fundar fræðslunefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 159 Skólaakstur á Sauðárkróki var boðinn út í maímánuði s.l. Tvö tilboð bárust í verkið og var ákveðið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Sú ákvörðun var kærð til kærunefndar útboðsmála. Kærunefnd útboðsmála stöðvaði samningsferlið á grundvelli kærunnar og jafnframt með vísan til þess að ekki var ljóst hvort rétt hefði verið staðið að útboðinu með tilliti til þeirrar lagaskyldu að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Í ákvörðun kærunefndar kemur eftirfarandi fram: ,,Með vísan til þess að útboðið hafi ekki verið auglýst svo sem lög bjóða telur nefndin í ákvörðun sinni dags. 31.08.2020, verulegar líkur á að hið kærða útboð hafi brotið í bága við lög eða reglur um opinbert útboð sem leitt getur til ógildingar útboðsins og þar með ákvörðunar um val á tilboði, sbr. 1. mgr. 110.gr. laga um opinber útboð." Með vísan til ofangreinds telur fræðslunefnd rétt að fella útboðið niður og felur sviðsstjóra að undirbúa nýtt útboð á skólaakstri á Sauðárkróki til eins árs.
    Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, fulltrúi VG og óháðra, leggur fram eftirfarndi bókun: ,, VG og óháðir standa ekki að afgreiðslu nefndarinnar vegna skólaaksturs á Sauðárkróki og telja að ekki hafi verið staðið vel að þessu útboði og afgreiðslu þessa máls. Þá bárust fundargögn málsins ekki á tilskildum tíma á því formi sem auðvelt var að nálgast. Óskað er eftir því að leiðbeiningar um mismunandi leiðir við að opna fundarskjöl verði gefnar út."
    Axel Kárason og Elín Árdís Björnsdóttir, fulltrúar meirihluta í sveitarstjórn, leggja fram eftirfarandi bókun: ,,Harma ber hve útboðsferlið tók langan tíma, en ítrekað að útboðsferlið tafðist þrátt fyrir að hafa verið undirbúið strax í janúar á þessu ári. Röð atvika orsakaði tafir en útboðið var jafnframt það fyrsta sem starfsmenn sveitarfélagsins undirbjuggu samkvæmt stöðlum Evrópska efnahagssvæðisins. Það var vel að því staðið og þökkum við vel unnin störf."
    Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalista, óskar eftirfarandi bókað: ,,fræðslunefnd ákvað 30. janúar að bjóða út skólaakstur á Sauðárkróki, fræðslunefndin hefur ekki fjallað um málið þar til í dag 16. september og þá er málið komið á þá leið að samþykkt hefur verið tilboð í verkið og sú samþykkt komin í kæruferli. Ljóst er að fræðslunefnd stóð ekki að umræddri ákvörðun, en samkvæmt samþykktum Sveitarfélgasins Skagafjarðar þá er það fræðslunefnd sem skal fara með og taka ákvörðun um skólaakstur í grunnskóla.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi Byggðarlista tók til máls og ítrekar bókun sína frá fundi fræðslunefndar svohljóðandi: Fræðslunefnd ákvað 30. janúar að bjóða út skólaakstur á Sauðárkróki, fræðslunefndin hefur ekki fjallað um málið þar til í dag 16. september og þá er málið komið á þá leið að samþykkt hefur verið tilboð í verkið og sú samþykkt komin í kæruferli. Ljóst er að fræðslunefnd stóð ekki að umræddri ákvörðun, en samkvæmt samþykktum Sveitarfélgasins Skagafjarðar þá er það fræðslunefnd sem skal fara með og taka ákvörðun um skólaakstur í grunnskóla.

    Axel Kárason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
    Ný lög um opinber innkaup og breytingar á viðmiðunarfjárhæðum sem tóku gildi frá 31. maí 2019 hefur þær afleiðingar að útboðum sveitarfélaga hefur fjölgað til muna. Innkaup sveitarfélaga eru einnig í fleiri tilvikum en áður kæranleg til kærunefndar útboðsmála.
    Lögin segja að kaupandi skuli velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboð hverju sinni svo fremi sem það uppfylli hæfiskröfur og útboðsskilmála að öðru leyti. Það þýðir að eftir að ákveðið hefur verið að ráðast í gerð útboðs gilda útboðsreglur og niðurstöður útboða eru bindandi fyrir kaupanda, nema ágallar séu á tilboðum. Nefndir sveitarfélagsins hafa ekki áskilið sér sérstaka aðkomu að því að meta bjóðendur og tilboð. Er slíkt því framkvæmdaatriði sem sviðsstjórar og starfsmenn sviða hafa annast með aðstoð ráðgjafa, eftir atvikum með aðstoð sveitarstjóra.

    Á árinu 2020 var ákveðið að ráðast í tvö stór útboð sem voru með þær viðmiðunarfjárhæðir að þær bar að bjóða út á evrópska efnahagssvæðinu. Um umfangsmikil útboð var að ræða sem undirbúin voru á miklum annatímum á erfiðum vetri og í Covid-ástandi en sveitarfélagið naut ráðgjafar fagaðila í báðum tilfellum.
    Útboð á skólaakstri á Sauðárkróki til þriggja ára, sem fræðslunefnd samþykkti samhljóða að ráðast í fyrr á þessu ári, var kært til kærunefndar útboðsmála sem ákvað að samningsgerð skyldi stöðvuð vegna þess að ekki hefði verið rétt staðið að útboðinu.
    Í því ljósi samþykktu allir aðalmenn í fræðslunefnd samhljóða á síðasta fundi nefndarinnar að undirbúa nýtt útboð á skólaakstri á Sauðárkróki til eins árs, svo ekki kæmi til tafa á upphafi skólaaksturs vegna þess að nýtt útboð á EES-svæðinu er talsvert tímafrekt.
    Meirihluti sveitarstjórnar styður samþykkt fræðslunefndar.


    Bjarni Jónsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi bókun:
    VG og óháð standa ekki að afgreiðslum tengdum eldra eða nýju útboði og málatilbúnaði honum tengdum vegna skólaaksturs á Sauðárkróki og telja að ekki hafi verið staðið vel að útboði og ákvörðunum í þessu máli. Þá fjallaði fræðslunefnd ekki um tilboðin, en slíkt er í hennar verkahring og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti, en ekki láta það sviðsstjóra og starfsmönnum einum eftir. Ljóst er að skerpa þarf á valdsviði og hlutverki pólitískt kjörinna fastanefnda sveitarfélagsins. Áréttað er að VG og óháð eiga áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd án atkvæðisréttar.
    Harmaður er sá farvegur sem málið er komið í. Það féll í hlut Kærunefndar útboðsmála að stöðva samningsferlið vegna fyrra útboðsins á grundvelli kæru sem lögð var fram og jafnframt með vísan til þess að ekki var ljóst hvort rétt hefði verið staðið að útboðinu. Ekki sér fyrir endann á málarekstri og til hvers það mun leiða.
    Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttir

    Afgreiðsla 159. fundar fræðslunefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með sjö atkvæðum. Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttir fulltrúar Vg og óháðra óska bókað að þau sitji hjá.
  • Fræðslunefnd - 159 Drög að skólanámskrá Tónlistarskóla Skagafjarðar lögð fram til kynningar. Fræðslunefnd fagnar vinnu við gerð skólanámskrárinnar og hvetur starfsfólk skólans til áframhaldandi faglegs starfs. Bókun fundar Afgreiðsla 159. fundar fræðslunefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.