Fara í efni

Landbúnaðarnefnd - 214

Málsnúmer 2011006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 404. fundur - 26.11.2020

Fundargerð 214. fundar landbúnaðarnefndar frá 10. nóvember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 404. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðarnefnd - 214 Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í Skagafirði í ljósi nýlegra riðutilfella í Tröllaskagahólfi. Nefndin tekur undir með landbúnaðarráðherra að tímabært sé að endurskoða allt starf hér á landi er varðar riðuvarnir.
    Meðal þess sem þarf að greina og rannsaka betur eru smitleiðir, sóttvarnir, hagkvæm nýting arfgerðagreininga í ræktunarstarfinu, kynbótastarf innan sóttvarnahólfa o.fl. þættir. Jafnframt þarf að leysa það vandamál sem blasir við þegar ekki er unnt að farga sóttmenguðum úrgangi með brennslu hér á landi, eins og æskilegast væri að gera m.t.t. sóttvarna.
    Enn fremur þarf að gæta að því hvernig unnt er að styðja þá bændur sem verða fyrir niðurskurði vegna riðu til að byggja upp bú sín að nýju. Sauðfjárrækt er ein mesta byggðafestubúgrein landsins og mikilvægt að fjárhagslegt áfall af völdum niðurskurðar komi ekki í veg fyrir að bændur sem fyrir honum verða geti byggt upp lífsviðurværi sitt að nýju.
    Þá vill landbúnaðarnefnd að horft verði til meðalhófsreglu stjórnsýslulaganna þegar tekin er ákvörðun um niðurskurð vegna riðu en hún er lögfest í 12. grein laganna þar sem segir: "Stjórnvald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til." Í því sambandi má benda á að a.m.k. á einu býlanna sem um ræðir greindist ekki riða í þeim 161 grip sem hefur verið lógað af viðkomandi býli vegna tengsla við aðkomuhrút sem dvaldist á býlinu um skemmri tíma, jafnvel þótt tekin hafi verið sýni úr bæði heilavef og eitlum gripanna. Hrúturinn var staddur á býlinu vegna afkvæmarannsókna fyrir sæðingarstöðvar og ábúendum einungis treyst fyrir afkvæmarannsókninni þar sem sauðfjárbúskapur á býlinu er til fyrirmyndar. Hrúturinn átti einungis að dvelja á býlinu yfir fengitímann en vegna utanaðkomandi ástæðna dvaldi hann þar fram á haust. Nauðsynlegt er að farið verið rækilega ofan í saumana á því hvort skipulögð og markviss hreinsun á býlinu og strangt eftirlit í tiltekinn tíma undir stjórn héraðsdýralæknis og í sátt við nágranna viðkomandi skili ekki sama árangri og ef gripið yrði til niðurskurðar, án fjárhagslegs tjóns fyrir viðkomandi bændur og ríkisvaldið. Fordæmi eru fyrir því innan Skagafjarðar að ekki hafi verið skorið niður allt fé á býli vegna gruns um riðuveiki en í staðinn gripið til annarra aðgerða líkt og bent er á hér að framan.
    Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.