Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 940

Málsnúmer 2011014F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 404. fundur - 26.11.2020

Fundargerð 940. fundar byggðarráðs frá 19. nóvember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 404. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefásson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur undanfarið haft til umfjöllunar og athugunar mengunarslys sem tengist bensínstöð N1 að Suðurbraut 9 á Hofsósi.
    Undir þessum dagskrárlið komu Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi Norðurlands vestra og Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs til viðræðu um málið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lögð fram svohljóðandi tillaga:
    Í ljósi verulegs álags á starfsmenn sveitarfélagsins á Covid tímum leggja VG og óháð og Byggðalistinn til að fjármagn sem ætlað var í árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins á þessu ári, verði afhent starfsmönnum sveitarfélagsins í formi úttektarkorta. Það væri þakklætisvottur frá sveitarfélaginu til starfsmanna sinna fyrir vel unnin störf á erfiðum tímum.
    Bjarni Jónsson (Vg og óháð) og Ólafur Bjarni Haraldsson (Byggðalista).
    Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 26. október 2020 frá félagsmálaráðuneytinu þar sem kynnt er að ráðuneytið leitar að sveitarfélögum sem eru áhugasöm um að taka þátt í reynsluverkefni um að fjölga móttöku flóttafólks í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir fundi með áhugasömum sveitarfélögum til þess að kynna verkefnið og innihald samninga við móttökusveitarfélög.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir kynningu á verkefninu frá félagsmálaráðuneytinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Farið yfir vinnugögn vegna fjárhagsáætlunar 2021-2025. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Gjaldskrá fasteignagjalda 2021 rædd. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram viðauki númer 8 við fjárhagsáætlun ársins 2020. Viðauki þessi er gerður vegna aukninna tekna í málaflokkum, hækkunar launakostnaðar vegna nýrra kjarasamninga. Millifærslur fjárheimilda á milli málaflokka. Einnig er viðauki gerður vegna nýrra fjárfestinga og svo millifærslur framkvæmdafjár milli verkefna. Viðaukinn er að fjárhæð 28 milljónir króna sem mætt er með hækkun skammtímaskulda.
    Byggðarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2020" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagt fram bréf frá stjórn Norðurár bs., dagsett 11. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir að nýjar samþykktir byggðasamlagsins verði staðfestar af sveitarstjórn að undangengnum tveimur umræðum.
    Byggðarráð samþykkir að vísa samþykktum Norðurár bs. til umræðu í sveitarstjórn.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Samþykktir Norðurár bs" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2020 frá Stapa lífeyrissjóðs, þar sem boðað er til fulltrúaráðsfundar þann 24. nóvember 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. nóvember 2020 frá nefndasviði Alþingis. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. nóvember 2020 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 242/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003". Umsagnarfrestur er til og með 23.11.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. nóvember 2020 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 243/2020, "Áform um ný lög um mat á umhvefisáhrifum framkvæmda og áætlana". Umsagnarfrestur er til og með 25.11.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 940 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 11. nóvember 2020 frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi heilbrigðisþing 2020 þann 27. nóvember 2020. Þingið verður rafrænt og er öllum opið. Bókun fundar Afgreiðsla 940. fundar byggðarráðs staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.