Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 392

Málsnúmer 2011016F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 404. fundur - 26.11.2020

Fundargerð 392. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 19. nóvember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 404. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 392 Ingimar Ingimarsson kt. 160451-3359 þinglýstur eigandi Ytra-Skörðugils á Langholti í Skagafirði (landnr. 146045) og lóðarinnar Ytra-Skörðugils 1 sem verið er að skipta út úr landi jarðarinnar, óska eftir heimild skipulags- og byggingarnefndar til að stofna byggingarreit á lóðinni skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti, unninn af Stoð ehf verkfræðistofu. Á byggingarreitnum er fyrirhugað að byggja íbúðarhús úr timbri á einni hæð, auk bílskúrs.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 392. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 392 Lögð er fram tillaga í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Skipulagstillagan inniheldur greinargerð, umhverfisskýrslu auk uppdrátta af þéttbýlisstöðum og dreifbýli. Vinnslutillaga hefur verið kynnt íbúum og auglýst með áberandi hætti í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga, og hafa verið gerðar lagfæringar og breytingar á umhverfisskýrslu, greinargerð og uppdráttum í kjölfar athugasemda og ábendinga frá einstaklingum, stofnunum og öðrum hagsmunaaðilum.
    Skipulags- og byggingarnefnd vil koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem komu að gerð tillögunnar á fumstigi og síðar vinnslutillögu, og komu með góðar og þarfar ábendingar og athugasemdir um hin ýmsu atriði, sem hafa nýst vel við útfærslu og gerð aðalskipulagstillögunnar.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að hún samþykki skipulagstillöguna í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til umsagnar og óska eftir heimild til að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga. nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 - Endurskoðun " Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 392 Lögð er fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 09, skipulags- og byggingarmál vegna ársins 2021.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að vísa framlögðum drögum fjárhagsáætlunar vegna ársins 2021, til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 392. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 392 Páll Pálsson eigandi Halldórsstaða II í Skagafirði, leggur fram fyrirspurn í tillöguformi, um hvort leyfi fáist til að byggja 10 íbúðarhús í landi jarðarinnar.
    Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu máls, og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari upplýsinga.
    Bókun fundar Afgreiðsla 392. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 392 Gyða Haraldsdóttir kt. 051153-4059, sækir um að stofna 3.854 m2 frístundahúsalóð auk byggingarreits úr landi Sjávarborgar II, L 145955, í samræmi við meðfylgjandi gögn, unnin af Eflu verkfræðistofu. Óskað er eftir að landspildan fái heitið Smáborg. Einnig er óskað eftir að sótt verði um undanþágu til umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá gr. 5.3.2.14, í skipulagsreglugerð nr. 91.2013, vegna 50m fjarlægðarmarka bygginga frá vatni.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir undandþágu frá 50 m fjarlægðarreglu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 392. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.