Fara í efni

Sundlaug Sauðárkróks - 2. áfangi

Málsnúmer 2011087

Vakta málsnúmer

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 26. fundur - 19.11.2020

Steinn Leó Sveinsson fór yfir væntanlegar framkvæmdir annars áfanga við byggingu Sundlaugar Sauðárkróks. Fram kom að útboðsgögn vegna jarðvegsvinnu eru tilbúin og verður verkið boðið út á næstu dögum.

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 27. fundur - 10.02.2021

Farið yfir hönnunargögn, verk- og kostnaðaráætlun 2. áfanga byggingar við Sundlaug Sauðárkróks. Gögnin kynntu Eyjólfur Þórarinsson og Atli Gunnar Arnórsson frá Stoð ehf., verkfræðistofu.
Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks samþykkir að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að bjóða verkið út á grundvelli þeirra gagna sem kynnt voru á fundinum.

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 29. fundur - 21.04.2021

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks samþykkir að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að undirbúa útboð viðbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks þar sem verkinu verður áfangaskipt og verktími lengdur frá fyrra útboði. Byggingarnefndin leggur áherslu á að útboðinu verði hraðað sem kostur er og framkvæmdir við verkið hefjist sem fyrst á þessu ári.

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 30. fundur - 16.06.2021

Á 29. fundi byggingarnefndar 21. apríl sl. var sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að undirbúa útboð viðbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks þar sem verkinu yrði áfangaskipt og verktími lengdur frá fyrra útboði.
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Atli Gunnar Arnórsson frá Stoð ehf. kynntu tillögu að áfangaskiptingu framkvæmda við seinni hluta endurbóta og uppbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks.
Byggingarnefnd samþykkir framlagðar tillögur fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 970. fundur - 16.06.2021

Vísað frá 30. fundi byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks þar sem nefndin samþykkti tillögur að áfangaskiptingu framkvæmda við seinni hluta endurbóta og uppbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks, og vísaði þeim til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ráðast í gerð útboða í samræmi við þær.