Tekin fyrir uppsögn á rekstri menningarhússins Miðgarðs frá Unni Gottsveinsdóttur fyrir hönd Gullgengis ehf, dagsett 03.06.21. Óskað er eftir að losna frá og með 1. október 2021. Uppsagnarfrestur samkvæmt samningi er 6 mánuðir en finnist rekstraraðili fyrir þann tíma er hægt að verða við óskum Gullgengis að losna undan samningi fyrr. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að auglýsa rekstur Menningarhússins Miðgarðs. Umsækjendur geri grein fyrir hugmyndum að nýtingu hússins í umsókninni.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að auglýsa rekstur Menningarhússins Miðgarðs. Umsækjendur geri grein fyrir hugmyndum að nýtingu hússins í umsókninni.