Ársalir - niðurstöður starfsmannakönnunar vegna umbótaferlis
Málsnúmer 2201148
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 175. fundur - 19.01.2022
Kynntar voru niðurstöður starfsmannakönnunar sem gerð var vegna þeirra breytinga sem unnið er að innan leikskólans Ársala. Breytingarnar taka til daglegs skipulags starfsins sem og starfsmannastjórnunar. Markmið breytinganna er að einfalda skipulag og öðlast betri yfirsýn en einnig að minnka álag á nemendur og starfsfólk.