Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd - 300

Málsnúmer 2203005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 423. fundur - 06.04.2022

Fundargerð 300. fundar félags- og tómstundanefndar frá 10. mars 2022 lögð fram til afgreiðslu á 423. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félags- og tómstundanefnd - 300 Félags- og tómstundanefnd samþykkir að breyta reglum um Hvatapeninga á þann hátt að aldursviðmið vegna kaupa á kortum í líkamsræktarstöð verði lækkuð þannig að ungmenni á 16.- 18. aldursári geti keypt kort í stað ungmenna á 17. og 18 aldursári. Nefndin felur sviðsstjóra að breyta síðustu málsgrein reglnanna þannig að hún verði svohljóðandi: ,,Undantekning frá þessu eru ungmenni á 16. - 18. aldursári en þau geta nýtt Hvatapeninga til kaupa á æfingakortum." Breytingunni vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 300. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 300 Erindi sem frestað var á síðasta fundi. Nefndin samþykkir að breyta reglum á þann veg að ungmenni á 16.-18. aldursári geti nýtt Hvatapeninga til kaupa á æfingakorti í líkamsræktarstöðum. Sjá samþykkt í 1. lið dagskrár. Bókun fundar Afgreiðsla 300. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 300 Reglur Sveitarfélagsins Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu við fötluð börn lagðar fram. Reglur þessar byggja á lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins frá 20. desember 2019 um framkvæmd frístundaþjónustu. Nefndin fagnar þessum reglum og hvetur til enn frekara starfs til samþættingar í þjónustu við íbúa. Reglunum vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 300. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 300 Minnisblað um möguleika sveitarfélagsins á að bjóða eldri borgurum Skagafjarðar að kaupa hádegisverð lagt fram. Í minnisblaðinu koma fram upplýsingar um fjölda einstaklinga eldri en 67 ára í dreifbýli Skagafjarðar ásamt upplýsingum um fjölda sem þiggja félagslega heimaþjónustu sem og notendur Dagdvalar á Sauðárkróki. Hugmyndir hafa verið uppi um að hægt sé að bjóða eldri borgurum að kaupa hádegisverði í skólum í dreifbýli. Ljóst er að erfitt er að koma þessari þjónustu við í núverandi húsnæði skólanna. Áform eru uppi um breytingar á skólahúsnæðinu í Varmahlíð og á Hofsósi. Málið áfram til skoðunar. Félags- og tómstundanefnd beinir því til sveitarstjórnar að þessi þjónusta verði höfð í huga við hönnun og framkvæmd áformaðra breytinga/viðbygginga. Bókun fundar Afgreiðsla 300. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 300 Fjögur mál tekin fyrir. Öll samþykkt. Bókun fundar Afgreiðsla 300. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.