Fara í efni

Landbúnaðarnefnd - 227

Málsnúmer 2204003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 424. fundur - 04.05.2022

Fundargerð 227. fundar landbúnaðarnefndar frá 7. apríl 2022 lögð fram til afgreiðslu á 424. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðarnefnd - 227 Málið áður á dagskrá 226. fundar landbúnaðarnefndar þann 17. mars 2022. Á fund nefndarinnar voru boðaðir fjallskilastjórar eftirtalinna fjallskiladeilda: Hegranes, Skarðsdeild, Sauðárkrókur, Staðardeild og Seyludeild úthluti. Fundinn sátu Úlfar Sveinsson, Sigurjóna Skarphéðinsdóttir, Jóhann M. Jóhannsson og Jónína Stefánsdóttir. Góðar og málefnalegar umræður fóru fram og samþykkt að Kári Gunnarssonn umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi hói saman fjallskila- og gangnastjórum á svæðinu síðsumars til að skipuleggja komandi göngur í haust. Bókun fundar Afgreiðsla 227. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 227 Landbúnaðarnefnd fagnar þeim áformum HS Orku, Fóðurblöndunnar og Kaupfélags Skagfirðinga að kanna hagkvæmni þess að reisa innlenda áburðarverksmiðju. Slík verksmiðja gæti aukið sjálfbærni innlendar matvælaframleiðslu og samtímis skapað öruggari skilyrði til föðuröflunar í landbúnaði. Óheyrilegar hækkanir á innfluttum áburði gera enn augljósari nauðsyn þess að framleiða sem mest af innlendum áburði, lífrænum sem ólífrænum. Bókun fundar Afgreiðsla 227. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 227 Landbúnaðarnefnd samþykkir að skipa starfshóp um viðhald skilarétta í sveitarfélaginu. Í starfshópnum verði formaður landbúnaðarnefndar, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og starfsmaður veitu- og framkvæmdasviðs. Starfshópnum falið að gera framkvæmdaáætlun og forgangsröðun stærri viðhaldsverkefna fyrir næstu fimm ár. Bókun fundar Afgreiðsla 227. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 227 Landbúnaðarnefnd staðfestir framlagðar áætlanir um veiði á mink og ref á árinu 2022. Einnig samþykkt að kalla ráðna veiðimenn til fundar þann 25. apríl n.k. Bókun fundar Afgreiðsla 227. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 227 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hegraness fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 227. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.