Skv. grein 2.1 í samþykktum SSNV skal, það ár sem sveitarstjórnarkosningar fara fram, halda aukaþing þar sem fram fer kjör nýrrar stjórnar ásamt kynningu á starfsemi samtakanna fyrir nýja sveitarstjórnarmenn. Skal þingið haldið sem fyrst að afloknum kosningum, eigi síðar en 15. júlí. Stjórn SSNV hefur nú ákveðið að aukaþing skuli haldið þann 21. júní 2022 og falið framkvæmdastjóra samtakanna að tilkynna sveitarfélögunum dagsetningu þingsins, óska eftir því að tilnefningu fulltrúa verði lokið eigi síðar en 6. júní og hefja undirbúning þings.
Stjórn SSNV hefur nú ákveðið að aukaþing skuli haldið þann 21. júní 2022 og falið framkvæmdastjóra samtakanna að tilkynna sveitarfélögunum dagsetningu þingsins, óska eftir því að tilnefningu fulltrúa verði lokið eigi síðar en 6. júní og hefja undirbúning þings.