Veitunefnd - 1
Málsnúmer 2206003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 2. fundur - 27.06.2022
Fundargerð 1. fundar veitunefndar frá 21. júní 2022 lögð fram til afgreiðslu á 2. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 1 Lögð fram tillaga um Guðlaug Skúlason sem formann, Jóhannes Ríkharðsson sem varaformann og Úlfar Sveinsson sem ritara.
Samþykkt samhljóða. Formaður tók við fundarstjórn.
Sigfús Ingi Sigfússon sat þennan lið. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 1 Vegna seinkunar á afhendingu búnaðar sem þarf til verksins verður seinkun á því að framkvæmdir hefjist. Áætlun gerir ráð fyrir að borun hefjist um miðjan ágúst næstkomandi.
Farið var yfir skýrslu Ísor um borun holu VH-22 og mikilvægi jarðhitasvæðisins í Varmahlíð. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 1 Á fundi sveitastjórnar þann 25. maí var tillaga Veitunefndar um að ganga að tilboði SET ehf um kaup á lagnaefni samþykkt. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri hefur staðfest töku tilboðs og er framleiðsla á rörunum komin í ferli.
Sviðsstjóri fór yfir niðurstöður útboðsins og stöðu verkefnisins. Ekki er stefnt á að fara í framkvæmdir fyrr en á næsta ári. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 1 Vegna aðstæðna í heiminum eru horfur á hráefnamarkaði slæmar eins og er. Verð á stáli hefur hækkað gríðarlega á mörkuðum og ekki er annað sjáanlegt en að verðið muni hækka enn meira og að jafnvel verði erfitt að útvega stál þegar að líða fer á árið.
Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og lagði til að farið yrði í nýtt efnisútboð þar sem að gert væri ráð fyrir innkaupum á öllum rörum sem vantar til að ljúka tengingu veitunnar frá Langhúsum að Róðhóli. Afhending efnis og greiðslur miðist við vorið 2023.
Samþykkt og sviðsstjóra falið að setja nýtt útboð í gang. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 1 Ný borholudæla er komin til landsins og unnið er að niðursetningu hennar og tengingum. Dæluprófanir eru framundan og eru vonir bundnar við að nýja dælan skili meira af heitu vatni en tekist hefur að vinna áður úr þessari holu.
Búið er að koma dælunni niður og prufudælingar verða framkvæmdar á næstunni. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 1 Fyrirhugaðar framkvæmdir að Hraunum í Fljótum kalla á aukna orkuþörf á hitaveitusvæðinu. Skagafjarðarveitur hafa ákveðið að skoða fýsileika þess að nýta jarðhita til verkefnisins frá Lambanesreykjum.
Sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs falið að ræða við landeigendur og láta gera nauðsynlegar mælingar á vatnsmagni og hita þannig að hægt verði að meta hvort að næg orka sé til staðar að Lambanesreykjum fyrir verkefnið. Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar veitunefndar staðfest á 2. fundi sveitarstjórnar 27. júní 2022 með níu atkvæðum.