Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd - 2

Málsnúmer 2208004F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 3. fundur - 17.08.2022

Fundargerð 2. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 11. ágúst 2022 lögð fram til afgreiðslu á 3. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 2
    NPA miðstöðin svf. hefur á undanförnum árum reiknað út jafnaðartaxta NPA fyrir sveitarfélög og hefur Skagafjörður tekið mið af þeim útreikningi við samþykkt greiðsluviðmið jafnaðarstunda.

    Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 var jafnaðartaxti NPA miðaður við útreikninga NPA miðstöðvarinnar á uppreiknuðum lágmarkstöxtum NPA samninnga frá 1.janúar 2021. Á þeim tíma var NPA miðstöðin ekki búin að uppreikna taxta fyrir árið 2022.
    NPA miðstöðin sendi sveitarfélögum uppreiknaðan jafnaðartaxta fyrir árið 2022 þann 20.janúar sl.

    Taxtarnir eru eftirfarandi frá 1.janúar - 30.apríl 2022:
    Jafnaðarstund NPA samninga sem eru án hvíldarvakta. 5.963 kr. á klukkustund.
    Jafnaðarstund NPA samninga sem kveður á um aðstoð allan sólarhringinn hjá notanda sem getur nýtt sér hvíldarvaktir. 5.441 kr. á klukkustund.
    Jafnaðarstund NPA samninga þar sem ekki er gert ráð fyrir næturvinnu, þ.e. hvorki hvíldarvöktum né vakandi næturvöktum. 5.622 kr. á klukkustund.

    Taxtar frá 1.maí - 31.desember 2022 eru eftirfarandi:

    Jafnaðarstund NPA samninga sem eru án hvíldarvakta. 6.717 kr. á klukkustund.
    Jafnaðarstund NPA samninga sem kveður á um aðstoð allan sólarhringinn hjá notanda sem getur nýtt sér hvíldarvaktir. 6.000 kr. á klukkustund.
    Jafnaðarstund NPA samninga þar sem ekki er gert ráð fyrir næturvinnu, þ.e. hvorki hvíldarvöktum né vakandi næturvöktum. 6.157 kr. á klukkustund.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir uppreiknaða jafnaðartaxta NPA miðstöðvarinnar fyrir árið 2022. Vísað til byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 3. fundi sveitarstjórnar 17. ágúst 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 2 Sjö mál tekin fyrir. Fimm samþykkt og tveimur synjað. Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 3. fundi sveitarstjórnar 17. ágúst 2022 með níu atkvæðum.