Skipulagsnefnd - 5
Málsnúmer 2208019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 4. fundur - 14.09.2022
Fundargerð 5. fundar skipulagsnefndar frá 25. ágúst 2022 lögð fram til afgreiðslu á 4. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulagsnefnd - 5 Drög að deiliskipulagi fyrir Hofsós, sunnan Kirkjugötu lögð fram. Skipulagsuppdráttur nr. DS01. útg. 1.1., dagssettur 19.08.2022, unninn á Stoð ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni og Ínu Björk Ársælsdóttur ásamt greinargerð, útg. 1.1., dagssett 19.08.2022.
Skipulagsnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja tillögu að deiliskipulagi fyrir Hofsós, sunnan Kirkjugötu í auglýsingu í samræmi við 41.gr skipulagslaga 123/2010.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, "Hofsós Deiliskipulag - Suðurbraut, Hofsóskirkja, Sætún og Hátún". Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 5 Anna Halla Emilsdóttir, Halldór Tryggvason og Erla Hleiður Tryggvadóttir þinglýstir eigendur jarðarinnar Merkigarðs, landnúmer 146206, í Tungusveit óska eftir því að skipulagsnefnd taki til umfjöllunar tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta jarðarinnar sem unnin var á kostnað landeiganda skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meðfylgjandi skipulagsgögn eru skipulagsuppdrættir DS01 og DS02, útg. 28.07.2022, ásamt skipulagsgreinargerð útg. 1.0, dags. 28.07.2022, unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu.
Tillagan gerir ráð fyrir 18 frístundalóðum innan frístundasvæðis nr. F-19 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035, byggingarreitum, heimreiðum og lagnaleiðum ásamt byggingarskilmálum.
Áður var lögð fram skipulagslýsing útg. 1.0 fyrir skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. júní 2017 þegar Aðalskipulags Skagafjarðar 2009-2021 var í gildi. Skipulagslýsing var auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga þar um og bárust 3 umsagnir/athugasemdir sem voru hafðar til hliðsjónar við vinnslu deiliskipulagsins. Þann 13. janúar 2020 tók skipulags- og byggingarnefnd fyrir skipulagslýsingu útg. 2.0. Í bókun kemur fram að breytingu á landnotkun yrði vísað til endurskoðunar á aðalskipulagi sem þá stóð yfir.
Nú hefur Aðalskipulag Skagafjarðar 2020-2035 tekið gildi og meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagi fyrir Merkigarð samræmist meginforsendum í gildandi aðalskipulagi um landnotkun og gengur ekki framúr skilmálum aðalskipulags um hámarksfjölda húsa.
Óskað er eftir því að tillagan að deiliskipulagi verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hljóti í framhaldi meðferð skv. 42. gr. laganna.
Skipulagsnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja tillögu að deiliskipulagi fyrir Merkigarð (landnr. 146206) í auglýsingu í samræmi við 41.gr skipulagslaga 123/2010.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, "Merkigarður (landnr. 146206) - tillaga að deiliskipulagi".
Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 5 Hörður Þórarinsson óskar eftir að gerður verði lóðaleigusamningur fyrir Flæðagerði 7.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera lóðarleigusamning við hlutaðeigandi og láta þinglýsa honum.
Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar skipulagnefndar staðfest á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 með átta atkvæðum. Jóhanna Ey Harðardóttir óskar bókað að hún víki af fundi undir afgreiðslu málsins. -
Skipulagsnefnd - 5 Einar Sigurjónsson óskar eftir að gerður verði lóðaleigusamningur fyrir Flæðagerði 11.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera lóðarleigusamning við hlutaðeigandi og láta þinglýsa honum.
Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar skipulagnefndar staðfest á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 5 Örn Ragnarsson og Margrét Aðalsteinsdóttir lóðarhafar við Lerkihlíð 1 á Sauðárkróki óskar eftir útmælingu lóðarinnar og hugsanlega breytingu á landi, landmótun og gerð göngustíga.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við lóðarhafa og mæla út lóðina.
Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar skipulagnefndar staðfest á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 5 Ólafur Bjarni Haraldsson eigandi lóðarinnar Brautarholts 1 (landnr. 234442) á Langholti í Skagafirði, óskar eftir heimild til þess að stofna 700 m2 byggingarreit á lóðinni, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7390-5002, dags. 15. ágúst 2022.
Um er að ræða byggingarreit fyrir íbúðarhús með sambyggðum bílskúr, steypt hús á einni hæð með hallandi þaki. Hámarks nýtingarhlutfall byggingarreits verður 0,6.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fenginni umsögn minjavarðar.
Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar skipulagnefndar staðfest á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 5 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 4 þann 17.08.2022. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar skipulagnefndar staðfest á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 með níu atkvæðum.