Fara í efni

Skagfirðingabraut 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2302234

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13. fundur - 16.03.2023

Guðmundur Þór Guðmundsson sækir f.h. Halldórs Bjarnasonar um leyfi til breytinga og endurbóta á fjöleignahúsi sem stendur á lóðinni númer 5 við Skagfirðingabraut, ásamt því að sameina séreignir með fasteignanúmerin F2132093 og F2132094 í eina íbúð. Húsið sem um ræðir er byggt 1929, sambyggt Skagfirðingabraut 3. Framlagðir aðaluppdrættir af Guðmundi Þór Guðmundssyni. Uppdrættir eru í verki 1122, númer 01 og 02, dagsettir 4. desember 2022. Fyrir liggur umsögn Minjastofnunar Íslands og samþykki eigna Skagfirðingabrautar 3. Byggingarfulltrúi samþykkir sameiningu séreigna og byggingaráform.