Borgarteigur 4 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2304102
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 15. fundur - 03.05.2023
Ingvar Gýgjar Sigurðarson sækir f.h. Kaffi 600 ehf. um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði á lóðinni númer 4 við Borgarteig. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3236, númer A-01, A-02, A-101, A-102, A-103, 104, A-105, A-201,A-202, A-301 og A-302, dagsettir 31. mars 2023. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.