Byggðarráð Skagafjarðar - 53
Málsnúmer 2306019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 15. fundur - 28.06.2023
Fundargerð 53. fundar byggðarráðs frá 21. júní 2023 lögð fram til afgreiðslu á 15. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Lagt fram erindi frá Essa ehf., dags. 15. júní 2023, þar sem óskað er eftir heimild til að loka Aðalgötu á Sauðárkróki, frá Kirkjutorgi norður að Kambastíg, laugardaginn 24. júní 2023 á milli kl. 10 og 24, þar sem fyrirhugað er að halda útitónleika undir formerkjunum "Tónleikar í gamla bænum". Settur verður upp sviðsvagn í götunni á milli Aðalgötu 19 og 20 sem snýr þannig að fólk safnast suður Aðalgötuna. Á sviðinu verða skemmtiatriði og tónlistaratriði frá u.þ.b. kl. 19:30-22:30. Fram kemur í erindinu að forsvarsmenn tónleikanna hafi rætt við flest fyrirtæki í Aðalgötunni sem ætli að hafa kvöldopnun sama kvöld. Markmiðið er því að fólk geti rölt á milli fyrirtækja í bænum þetta kvöld og síðan notið tónlistar norðarlega í Aðalgötunni. Sömu helgi fer fram stórt knattspyrnumót á Sauðárkróki.
Byggðarráð samþykkir lokun götunnar með skilyrðum um samþykki lögreglu og trygga aðkomu neyðarbíla að svæðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Lögð fram greinargerð um mótssvæðið á Hólum í Hjaltadal, með umsókn Hestamannafélagsins Skagfirðings til Landsmóts hestamanna ehf. um að fá heimild til að halda landsmót hestamanna árið 2030. Í greinargerðinni koma fram allar þær upplýsingar sem óskað er eftir að fylgi umsókninni, þ.e. upplýsingar um fyrirhugað mótssvæði, lýsing á staðháttum, upplýsingar um fjölda hesthúsplássa á og við mótssvæðið, fjölda gistirýma í nágrenni við mótssvæðið, áætlun um rekstur mótsins og teikningar af svæðinu. Umsóknin nýtur stuðnings Háskólans á Hólum.
Byggðarráð samþykkir að styðja jafnframt við umsóknina. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. júní 2023, þar sem forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 110/2023, Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands. Umsagnarfrestur er til og með 21. júlí 2023.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir áherslur um að efla og vernda mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins. Byggðarráð minnir á í tengslum við fyrirætlan um nýja stofnun á vegum ríkisins að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla á að til að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Jafnframt að stutt verði við starfsaaðstöðu hins opinbera á landsbyggðinni. Byggðarráð telur því einboðið að ef ný Mannréttindastofnun verður sett á laggirnar verði hún staðsett fjarri höfuðborgarsvæðinu. Í þessu tilfelli er ekki um að ræða flutning stofnunar heldur nýja stofnun. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. júní 2023, þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 112/2023, Drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038. Umsagnarfrestur er til og með 31. júlí 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 53 Lagt fram til kynningar bréf dags. 13. júní 2023 frá Önnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands. Í bréfinu er tilkynnt að Skagafirði er úthlutaður styrkur að upphæð kr. 780.000 vegna verkefnisins "Upplýsingaskilti um Verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og Hofsósi".
Alls voru í ár samþykktar styrkveitingar til 13 aðila, samtals að upphæð 8 milljónir króna. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar byggðarráðs staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.