Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 13

Málsnúmer 2308013F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 17. fundur - 13.09.2023

Fundargerð 13. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar frá 22. ágúst 2023 lögð fram til afgreiðslu á 17. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri kvöddu sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 13 Magnús Barðdal verkefnastjóri fjárfestinga á SSNV mætti á fundinn og kynnti niðurstöður úr stefnumótunarvinnu sveitarstjórnar Skagafjarðar í atvinnumálum.

    Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 17. fundi sveitarstjórnar 17. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 13 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Guðjóni Inga Eiríkssyni hjá Bókaútgáfunni Hólum, dagsett 14.07.2023, vegna útgáfu ævisögu Björns Pálssonar en Björn var frumkvöðull þegar kemur að sjúkraflugi. Sótt er um 50 þúsund krónur.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni
    Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 17. fundi sveitarstjórnar 17. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 13 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Sigurði Hauksyni fyrir hönd Skíðadeildar Tindastóls, dagsett 18.07.2023, vegna kostnaðar við Skíðaþings Skíðasambands Íslands sem haldið verður 27. - 28. október nk. í Skagafirði. Sótt er um 150 þúsund krónur.
    Atvinnu-, menningar- kynningarnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 17. fundi sveitarstjórnar 17. september 2023 með níu atkvæðum.