Fræðslunefnd - 20
Málsnúmer 2310025F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 19. fundur - 15.11.2023
Fundargerð 20. fundar fræðslunefndar frá 7. nóvember 2023 lögð fram til afgreiðslu á 19. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 20 Málið áður á dagskrá 18. fundar fræðslunefndar þar sem það var fært í trúnaðarbók. Aðili máls hefur óskað eftir því að bókun í trúnaðarbók verði birt opinberlega í fundargerð fræðslunefndar.
Fræðslunefnd samþykkir að birta bókun úr trúnaðarbók sem er eftirfarandi:
"Skv. reglum um skólasókn í öðru skólahverfi í sveitarfélaginu Skagafirði er heimilt að veita undanþágu frá því að börn sæki skóla í sínu skólahverfi ef rík málefnaleg sjónarmið, fagleg eða félagsleg liggja fyrir. 4. grein reglnanna gerir ráð fyrir að ekki hljótist verulegur kostnaður af skólasókn í öðru skólahverfi. Beiðni foreldra um flutning skal vera skrifleg og rökstudd og skal hafa borist fræðslustjóra 10. dag júní mánaðar til að unnt sé að taka afstöðu til beiðnarinnar fyrir skólabyrjun. Fræðslunefnd tekur slík erindi fyrir og færir ákvörðun í trúnaðarbók. Ef slík erindi eru samþykkt er það gert með fyrirvara um að ekki komi til aukins kostnaðar fyrir sveitarfélagið, svo sem skólaaksturs.
Í ljósi framangreinds er erindinu hafnað." Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar fræðslunefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 20 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. október 2023 þar sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál. Umsagnarfrestur var til 24. október sl.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er þjónustu- og þekkingarstofnun sem heyrir undir ráðherra. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu starfar í þágu barna og ungmenna á sviði fræðslu- og menntamála um land allt í samræmi við lög, stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar fræðslunefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 20 Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir grunnskóla í Skagafirði lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar fræðslunefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 20 Fundargerð skólaráðs Árskóla frá 17. október 2023 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar fræðslunefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 20 Þrjú mál tekin fyrir og færð í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar fræðslunefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.