Fara í efni

Samfélagsmiðlar og samstarfsfyrirtæki MN - samstillt átak tengd EasyJet

Málsnúmer 2312018

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 18. fundur - 20.12.2023

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 1. desember 2023 þar sem Markaðsstofa Norðurlands kynnir sérstaka markaðsherferð á samfélagsmiðlum þar sem öllum samstarfsfyrirtækjum er boðið að taka þátt í.
Áhersla er á vetrarferðamennsku og miðast efnið því við það. Markmiðið er að kynna áfangastaðinn Norðurland í heild og að ferðaþjónusta á Norðurlandi sýni að þau séu meðlimir í Markaðsstofunni, Visit North Iceland. Með þessu fæst slagkraftur og norðlensk ferðaþjónusta slær svipaðan tón á samfélagsmiðlum inn í veturinn.