Fara í efni

Drekahlíð 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2402046

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 32. fundur - 15.02.2024

Berglind Ragnarsdóttir og Sigurður H. Ingvarsson sækja um leyfi til að gera breytingar á útliti einbýlishúss og bílskúr sem stendur á lóðinni númer 3 við Drekahlíð á Sauðárkróki og varðar breytingar á gluggum og hurðum.
Einnig lögð fram göng er varða tilkynningarskyldar framkvæmdir, breytingar á innangerð og lögnum. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 2676, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 1. janúar 2024, ásamt burðarvirkis- og lagnauppdráttum dagsettum 1. janúar 2024.
Framlagðir raflagnauppdrættir dagsettir í janúar 2024 gerðir af Gísla Árnasyni raflagnahönnuði. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaheimild veitt.

Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.