Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1

Málsnúmer 2404056F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 27. fundur - 15.05.2024

Fundargerð 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 22. apríl 2024 lögð fram til afgreiðslu á 27. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Sveitarstjóri leggur fram tillögu um Einar Eðvald Einarsson sem formann, Sólborgu Sigurrósu Borgarsdóttur sem varaformann, Hildi Þóru Magnúsdóttur sem ritara og Svein Þ. Finster Úlfarsson sem áheyrnarfulltrúa.

    Samþykkt með þremur atkvæðum. Formaður tók við fundarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • .2 2404067 Dælustöðvar
    Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Vegna aukinnar notkunar á heitu vatni í utanverði Blönduhlíð og Hegranesi er orðin þörf á nýrri dælustöð við Ketu í Hegranesi.
    Skagafjarðarveitur leggja til að framkvæmdir fari fram á þessu ári en framkvæmdin er ekki á fjárhagsáætlun.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaða framkvæmd með þremur atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu byggðarráðs.

    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skagafjarðarveitna sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnti áætlun um refa og minnkaveiði árið 2024.
    Fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir að veita fjármagni til grenjavinnslu allt að 7.644 þús.kr. (408 dýr) og til minkaveiða 2.723 þús.kr. (235 dýr).
    Fundur með veiðimönnum verður haldinn í Ljósheimum 2. maí nk.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir framlagða skiptingu á svæðum og kvóta á minka- og refaveiðum vegna ársins 2024. Jafnframt felur nefndin umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að fá frá veiðimönnum, veiðitölur veiðitímabilsins 1. maí til 1. ágúst, strax og veiðitímabilinu líkur.

    Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Úthlutun framlaga 2024 til fjallskilanefnda. Þegar hefur verið úthlutað 4,6 mkr. af 8,5 mkr. sem eru til ráðstöfunar.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd fór yfir stöðuna á úthlutun fjármuna til fjallskilanefnda, en ennþá vantar upplýsingar frá fjallskilanefndum Vestur Fljóta, Framhluta Skagafjarðar og Upprekstrarfélagi Akrahrepps.
    Nefndin vil áretta að forsenda fyrir úthlutun er skil á fjárhagsáætlun og sjóðsstöðu.

    Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Fjáreigendafélag Sauðárkróks sendi erindi dagsett 22. nóvember 2023 um að fá fjárhólf til afnota og leigu. Landið er uppi á hálsinum ofan Sauðárkróksréttar og golfvallar.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd vísar drögum að samningi til afgreiðslu byggðarráðs.

    Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • .6 2404180 Aðalfundur 2024
    Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Aðalfundur Veiðifélags Laxár í Skefilsstaðahreppi er boðaður þann 27. apríl n.k. Nefndin þarf að skipa fulltrúa sveitarfélagsins á fundinn og veita honum atkvæðisrétt sveitarfélagsins. Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi hefur sótt fundi veiðifélaga þar sem sveitarfélagið á ítök.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd felur Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að sitja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

    Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Landbúnaðar- og innviðanefnd leggur til að umhverfisdagar sveitarfélagsins verði færðir til 7.-14. júní. Á því tímabili eru einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki á svæðinu hvött til að taka þátt í þeim. Íbúar eru hvattir til þess að taka til hjá sér, losa sig við rusl af lóðum, þ.m.t. bílhræjum, sækja um stöðuleyfi þar sem það á við og ganga snyrtilega um gámasvæði. Sveitarfélagið vonast til að vel verði við brugðist, þannig að ásýnd sveitarfélagsins batni til muna frá því sem nú er.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd hvetur alla íbúa til að sameinast í átakinu um að ganga vel um.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd vill minna lóðarhafa á að skylt er að halda vexti trjáa og runna á lóðum innan lóðarmarka og íbúar eru hvattir til að huga að því sérstaklega við götur og gangstíga og klippa gróðurinn og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir að tekið verði gjaldfrjálst við úrgangi frá einstaklingum svo sem blandaður byggingarúrgangur, blandaður úrgangur í urðun og málað/fúavarið timbur. Söfnunin fer fram á móttökustöðvum á opnunartíma þeirra. Jafnframt verður rætt við Íslenska gámafélagið um söfnun á járni í dreifbýli.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd felur sviðsstjóra að auglýsa viðburðinn og vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. laga um Fjarskiptastofu nr. 75/2021, er stofnuninni heimilt að kanna áform um uppbyggingu eða uppfærslu fjarskiptaneta. Tilgangur slíkrar könnunar er að leiða í ljós hvar stendur ekki til, a.m.k. á þeim tímapunkti þegar könnunin fer fram, að byggja upp fjarskiptanet á markaðsforsendum.
    Með bréfi dags. 13. mars 2024, óskaði fjarskiptasjóður eftir því að Fjarskiptastofa framkvæmi áformakönnun skv. 2. mgr. 11. gr. Fjarskiptasjóður óskar eftir því að Fjarskiptastofa kalli eftir áformum fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila um uppbyggingu ljósleiðara, aðgangsneta á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum fyrir árslok 2026.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd felur sviðsstjóra að svara erindinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fyrir sitt leyti stofnun nýs lögbýlis að Stóru-Seylu land, L196602, með þremur atkvæðum og vísar málinu til sveitastjórnar.

    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Stofnun lögbýlis, L196602, Stóra-Seyla land, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Gerðar voru fyrstu mælingar á seltu sjávarins á 5, 10, 15, og 20 metra dýpi, seltan er mest á 20 metra dýpi. Mælingarnar voru gerðar að frumkvæði Hólaskóla í samvinnu við Skagafjarðarveitur.

    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skagafjarðarveitna fór yfir mælingar sem búið er að gera og stöðu málsins. Ennþá er unnið að rannsóknum á gæðum sjávarins og útfærslu hönnunar.

    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skagafjarðarveitna sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Opnun tilboða á Stoð ehf. fyrir borun á holu BM-14 í Borgarmýrum, tilboð opnað á Stoð ehf. verkfæðistofu föstudaginn 12. apríl kl. 13:00. Eitt tilboð barst í verkefnið og var það yfir kostnaðaráætlun.

    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skagafjarðarveitna sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Á stjórnarfundi 24.02.2024 samþykkti stjórn Úrvinnslusjóðs breytingu á greiðslum vegna sérstakrar söfnunar til samræmis við vísitölubreytingar.

    Endurgjald hækki um 7,5% og hækkun gildi afturvirkt frá 1. janúar 2023.
    Endurgjald hækki um 15% frá 1. janúar 2024 frá upphaflegri gjaldskrá.
    Stjórn samþykkti að hætt yrði að greiða fyrir samsöfnun pappa og plasts frá og með 1. maí 2024.

    Ekki þarf að sækja sérstaklega um afturvirka greiðslu vegna 2023, greitt verður eins fljótt og mögulegt er en greiðslur byggjast á skilum þjónustuaðila til Úrvinnslusjóð.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 1 Kaldavatnsnotkun hefur vaxið verulega á Sauðárkróki vegna aukinnar atvinnustarfsemi og fjölgunar íbúa. Áríðandi er að fá meira vatn til að mæta stóraukinni þörf á svæðinu. Nokkrir möguleikar koma til greina og þar á meðal er að semja við landeigendur Skíðastaða um vatn úr Hrafndalnum.

    Landbúnaðar- og innviðanefnd felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og sveitarstjóra að óska eftir fundi með landeigendum.