Fara í efni

Skipulagsnefnd - 48

Málsnúmer 2404060F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 27. fundur - 15.05.2024

Fundargerð 48. fundar skipulagsnefndar frá 22. april 2024 lögð fram til afgreiðslu á 27. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 48 Farið yfir innsendar umsagnir við skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingar fasa 2 á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem var í kynningu dagana 13.03.2024- 10.04.2024 á Skipulagsgáttinni mál nr. 240/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/240.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða viðbrögð við innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingar fasa 2 á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 48 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við auglýst deiliskipulag Borgargerði 4, Borgarsveit, Skagafirði, mál nr. 425/2023 (https://skipulagsgatt.is/issues/2023/425) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillöguna að deiliskipulagi, Borgargerði 4, Borgarsveit, Skagafirði og felur skipulagsfulltrúa að senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða jafnframt þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 48 Skipulagsnefnd hefur ákveðið að halda kynningarfund vegna deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Sauðárgil og aðalskipulagsbreytingar á Afþreyingar- og ferðamannasvæði við Sauðárgil, AF-402 þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi, kl. 16:00- 18:00 í Stóra salnum að Sæmundargötu 7A á Sauðárkróki.
    Athugasemdafrestur við bæði málin á Skipulagsgáttinni verður framlendur um 2 vikur eða frá 01.05.2024 til og með 16.05.2024.
    Tengill á bæði málin á Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar:
    https://skipulagsgatt.is/issues/2023/516
    https://skipulagsgatt.is/issues/2023/515
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 48 Ína Björk Ársælsdóttir hjá Stoð ehf. verkfræðistofu sendir inn erindi og vísar í fyrri bókun skipulagsnefndarinnar frá 11.01.2024 varðandi umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Suðurbraut 9 (málsnúmer 2312100) þar sem afmörkun lóðarinnar liggur ekki fyrir og því ekki hægt að skipuleggja bílastæði innan lóðar.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að farið verði í deiliskipulagsvinnu fyrir svæði sem afmarkast af Suðurbraut, Túngötu, Lindargötu og Skólagötu á Hofsósi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Suðurbraut 9 - Fyrirspurn vegna deiliskipulagsvinnu á Hofsósi,síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 Fara yfir innsendar umsagnir sem bárust á kynningartíma (22.02.2024- 23.03.2024) grenndarkynning vegna lóðar fyrir dreifistöð Rarik í Varmahlíð.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að umsókn um lóð fyrir dreifistöð í Varmahlíð verði hafnað í ljósi mikillar andstöðu íbúa við staðsetninguna og að skipulagsfulltrúa verði falið að funda með Rarik til að finna heppilegri staðsetingu.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsókn um lóð fyrir dreifistöð í Varmahlíð - Grenndarkynning, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 Reimar Marteinsson fulltrúi rekstarstjórnar Kaupfélags Skagfirðinga sendir inn fyrirhugaða tímalínu á umbeðnum þróunarreit við Borgarflöt nr. 23, 25, 27 og 29 á Sauðárkróki.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að vísa ákvörðun um erindi Kaupfélags Skagfirðinga um beiðni um þróunarreit til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Borgarflöt nr. 23, 25, 27 og 29 - Beiðni um þróunarreit, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 María Stefanía Jóhannsdóttir fyrir hönd Kúskerpis ehf. eiganda lögbýlisins Kúskerpis landnúmer 146314 óskar eftir framkvæmdaleyfi til nytjaskógræktar á 10,6 hektara svæði á landi jarðarinnar.

    Meðfylgjandi er hnitsettur uppdráttur dags. 31.01.2024 af fyrirhuguðu skógræktarsvæði unnin hjá Landi og skógi af Sigríði Hrefnu Pálsdóttur.
    Fyrirhugað skógræktarsvæði er í landi Kúskerpis. Nú þegar er í gildi samningur um nytjaskógrækt frá árinu 2002 á 34,8 ha svæði neðar í landinu. Nýja skógræktarsvæðið er 10,6 hektarar að stærð og hefur verið nýtt sem beitiland. Svæðið er í um 150 - 190 m.y.s..
    Umsókn þessari fylgir umsögn minjavarðar Norðurlands vestra dags. 08.02.2024.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Kúskerpi L146314 - Umsókn um framkvæmdarleyfi til skógræktar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 Gunnar Freyr Gunnarsson og Aðalheiður Sigurðardóttir sækja um byggingarlóðina við Nestún 7 á Sauðárkróki.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 48 Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 8. apríl síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um leyfi til að byggja parhús á lóðinni númer 18 við Nestún á Sauðárkróki.
    Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu. Uppdrættir í verki 79006210, númer A-100 A-101, A-102 og A-103, dagsettir 12. mars 2024.

    Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila að vikið verði frá 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin á gildandi deiliskipulagi sé það óveruleg að ekki sé talin ástæða til meðferðar skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Nestún 18 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 Sandra Björk Jónsdóttir fyrir hönd Sauðárhlíðar ehf. sækir um breytingu á lóðarblaði og lóðarsamningi hjá veitingahúsinu Sauðá, um að afnema bann við innakstri inn á plan við Sauðá.
    Frá því að við tókum við rekstri veitingahússins hefur umferð margfaldast og þykir okkur ekki gott að þurfa að troðast inn á annarra manna umráðasvæði með því að gestir okkar leggi á stæðum hjá nálægum stofnunum og höfum við heyrt að það sé ekki að valda neinni sérstakri ánægju á þeim bæjum, skiljanlega.
    Þar sem að deiliskipulag á svæðinu er í vinnslu og samkvæmt því er gert ráð fyrir að innkeyrsla verði leyfð inn á þetta plan og jafnvel verði gert ráð fyrir að gestir Litla-skógar geti ekið þarna inn líka. Þá þykir okkur rökrétt að þessu innaksturs banni verði aflétt sem fyrst og eru góð rök með því að nú þegar hefur verið gert mat á umferð og hættumat á þessu gatnamótum sem renna stoðum undir það að leyfa innakstur á svæðið.

    Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að aflétta kvöð á lóðinni og í kjölfarið að fela skipulagsfulltrúa að uppfæra lóðarblað og lóðarleigusamning. Nefndin bendir jafnframt á að tryggja þurfi öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda um umrædda innkeyrslu áður en innkeyrslubannið verði tekið af. Vinna þarf verkið í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

    Jón Daníel Jónsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Veitingarhúsið Sauðá - Lóðarmál, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 48 Helga Sjöfn Helgadóttir og Gunnlaugur Hrafn Jónsson, þinglýstir eigendur Hátúns 1 (L146038) óska eftir heimild til að stofna 1.260 m2 íbúðarhúsalóð úr landi jarðarinnar. Vísað er til meðfylgjandi afstöðuuppdráttar sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 27. mars 2024. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7354-4000.

    Hátún I er fyrir landskipti 168,5 ha og verður eftir landskipti 168,4 ha.

    Íbúðarhús er innan útskiptrar lóðar og fylgir henni að landskiptum loknum:
    Fasteignanúmer F2140466
    Matshluti 03 0101
    byggingarár 1950
    birt stærð 222,7 m²
    Lóðin fær heitið Hátún 3. Landheiti vísar til upprunajarðar og er næsti lausi tölustafur notaður.

    Landskipti samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og styðja við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli. Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Lítið sem ekkert ræktað land er innan útskiptrar lóðar.

    Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar lóðar.

    Lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu áfram fylgja Hátúni I, L146038.

    Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M000045 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðin landskipti og umbeðið eignarheiti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 48 Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Sigurjóni Þórðarsyni hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra dags. 05.04.2024 vegna Þormóðsholts L228962. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar skipulagnefndar staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.