Fara í efni

Tangi L236535 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2405021

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 38. fundur - 08.05.2024

Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Ólafs Ágústs Andréssonar og Guðlaugar Kristínar Pálsdóttur um leyfi til að byggja íbúðarhús á lóðinni Tanga, L236535. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 76340002, númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 6. maí 2024. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.