Fara í efni

Kleifatún 2 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2407165

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 55. fundur - 15.08.2024

Hafsteinn L. Sigurðarson og Júlía Ó. Gestdóttir lóðarhafar Kleifartúns 2 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að fá að breikka innkeyrsluna að lóðinni. Sótt er um 3,8 metrar breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins.
Með fylgir afstöðumynd sem gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið. Framkvæmdin skal unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.