Fara í efni

Skipulagsnefnd

55. fundur 15. ágúst 2024 kl. 10:02 - 12:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulagsbreyting - Aðalskipulagsbreyting M-401 - Íbúðarreitur milli Sæmundargötu og Freyjugötu á Sauðárkróki

Málsnúmer 2402049Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagsbreytingu fyrir "Íbúareitur milli Sæmundargötu, Ránarstígs og Freyjugötu á Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 05.06.2024- 18.07.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 715/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/715.
Fjórar umsagnir bárust sem gáfu ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillöguna að deiliskipulagsbreytingu, "Íbúareitur milli Sæmundargötu, Ránarstígs og Freyjugötu á Sauðárkróki" og felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.

2.Kirkjureiturinn (143549) Sauðárkrókskirkja - Deiliskipulag

Málsnúmer 2108244Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að deiliskipulagstillögu fyrir Kirkjureitinn á Sauðárkróki.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Jón Daníel Jónsson vék af fundi við umfjöllun málsins.

3.Dýjabekkur L146008 og Útvík land L146006 - Landamerki

Málsnúmer 2408041Vakta málsnúmer

Arnór Halldórsson Hafstað fyrir hönd þinglýstra eigenda jarðarinnar Dýjabekkjar, L146008 og Útvíkur lands, L146006 (sem óskað er eftir að heiti Dýjaból eftir umbeðnar breytingar) er með vísan til 2. mgr. 14. gr. l. 6/2001 óskað eftir að breytt verði skráningarupplýsingum um þær fasteignir í fasteignaskrá.

Meðfylgjandi eru:
a)
Uppdráttur S-01 sem sýnir afstöðumynd (1:1.500), yfirlitsmynd (1:10.000) og kort (1:50.000) vegna landnr. 146006, 146007, 146008 og tveggja millispildna við upphaf verks.
b)
Uppdráttur S-02 sem sýnir afstöðumynd (1:1.500), yfirlitsmynd (1:10.000 og kort (1:50.000) vegna landnr. 146006 (Dýjaból) og 146008 (Dýjabekkur) eftir allar breytingar, þ.m.t. sameiningu spildna.
c)
Merkjalýsing dags. 01.08. 2024 fyrir Dýjabekk, m.v. breytta skráningu þar sem vísað er til framangreinds uppdráttar S-02 frá Stoð verkfræðistofu ehf.
d)
Merkjalýsing dags. 01.08. 2024 fyrir Dýjaból, m.v. breytta skráningu, ásamt hnitsettum uppdráttum frá Stoð verkfræðistofu ehf.
Í merkjalýsingunum er gerð grein fyrir þeim eindum sem skrá skal fyrir fasteignir, sbr. 2. mgr. 3. gr. l. 6/2001 og öðrum upplýsingum sem skrá ber skv. þeim lögum.
Í beiðni þessari felst að fasteignin Útvík land, landnr. 146007 verði sameinuð Dýjabekk og verði landnr. 146007 að því loknu fellt niður.

Fyrir hönd Páfastaða ehf. kt. 661119-0710, þinglýsts eiganda Útvíkur, landnr. 146005, er vísað til framangreindra uppdrátta S-01 og S-02 og óskað eftir stofnun tveggja áðurgreindra millispildna, Útvík millispilda 1 og Útvík millispilda 2. Vegna þeirra er vísað til meðfylgjandi gagna:
e)
Merkjalýsing fyrir framangreindar millispildur dags. 01.08. 2024, þar sem vísað er til framangreinds uppdráttar S-01 frá Stoð verkfræðistofu ehf.
f)
Umsóknar á eyðublaði F-550 dags. 01.08. 2024.
Útvík millispilda 1 skal sameinuð Dýjabóli ehf. en Útvík millispilda 2 Dýjabekk.
Lögbýlisréttur mun áfram fylgja Útvík, landnr. 146005.
Ekkert ræktað land fylgir útskiptum millispildum sem eru að mestu leyti innan veghelgunarsvæðis þjóðvegar 75, Sauðárkróksbrautar, og eru engin mannvirki á þeim nema girðingar og hliði á heimreið og umræddur þjóðvegur, sem og sá hluti heimreiðar til Dýjabekks/Dýjabóls sem tengir hana við hann.
Engin hlunnindi fylgja umræddum millispildum í þessum landskiptum.
Landskiptin eru í samræmi við aðalskipulag Skagafjarðar 2020-2035.
Málsnúmerin hjá landeignaskrá eru eftirfarandi: M000729 og M000748.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt.

4.Fellsborg L231851 - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2407182Vakta málsnúmer

Eggert Þór Birgisson og Þóranna Másdóttir, fyrir hönd F-Borgar ehf. sem er þinglýstur eigandi jarðarinnar Fellsborg í Hegranesi landeignarnúmer L231851, óska eftir leyfi skipulagsyfirvalda til að skilgreina byggingarreit fyrir íbúðarhús á jörðinni, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti. Uppdrátturinn er gerður af Ingvari Gýgjar Sigurðarssyni, hann er númer S-101, vistaður undir verknúmeri 3086 og dagsettur 26.04.2024.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

5.Birkimelur 24 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2407072Vakta málsnúmer

Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 05.07.2024 vegna umsóknar frá Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Margrétar Evu Ásgeirsdóttur og Jóhannesar Björns Þorleifssonar. Umsókn um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 24 við Birkimel í Varmahlíð, ásamt breyttri að komu að lóðinni.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af umsækjanda. Uppdrættir númer 100, 101, 102 og 103, dagsettir 19.06.2024.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Birkimels 11, 20, 22, 26, 28 og 30.

6.Bárustígur 16 - Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2407073Vakta málsnúmer

Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 05.07.2024
vegna umsóknar frá Sigurði Óla Ólafssyni tæknifræðingi f.h. Valdimars Péturssonar um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni nr. 16 við Bárustíg, ásamt því að byggja bílskúr á lóðinni.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 79008500, númer A-100 A-101, A-102 og A-103, dagsettir 3. júní 2024.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Bárustígs 14 og 17, Sæmundargötu 15 og Öldstígs 17.

7.Neðri-Ás II lóð L227648 - Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2407074Vakta málsnúmer

Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 05.07.2024
vegna umsóknar frá Hlín Mainka Jóhannesdóttur um leyfi til að koma fyrir tveimur gámeiningum sem tengast saman með anddyri á lóðinni Neðri-Ás II lóð L227648. Um er að ræða aðstöðurými í tengslu hesthús sem stendur á lóðinni.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Sigurði Óla Ólafssyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 71592003, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 29. maí 2024, ásamt umsókn um byggingarleyfi og samþykki lóðarhafa, dagsettri 29.05.2024.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd umbeðna framkvæmd.

8.Hamar 2, L234539 - Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2408061Vakta málsnúmer

Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 17.07.2024
Vegna tveggja umsókna frá Braga Þór Haraldssyni tæknifræðingi f.h. Baldurs Haraldssonar um leyfi til að byggja einbýlishús og gestahús lóðinni Hamri 2, L234539 í Hegranesi.
Í umsókn um byggingu einbýlishúss/bílgeymslu segir m.a.
“Á lóðinni Hamar 2 í Hegranesi á að byggja einbýlishús á einni hæð og sambyggða bílgeymslu úr steinsteypu. Húsið verður með flötu þaki einangrað ofan frá og þak lagt asfaltpappa. Veggir hússins verða einangraðir utanfrá og klæddir með gráum flísum. Gólfflatarmál alls 348,8 fermetrar. Umsækjandi áformar að hefja framkvæmdir á þessu ári með gerð heimreiðar frá Hegranesvegi og jarðvegsskiptum á lóðinni undir húsinu og gestahúsi sem sótt er um í sér umsókn. Einnig verður skipt um jarðveg eins og þarf undir bílastæðum og athafnasvæði sem nauðsynlegt er á byggingartímanum. Skolphreinsistöð verður komið fyrir og frárennslislagnir lagðar að gestahúsinu og áleiðis að íbúðarhúsinu, Einnig settur niður grjótsvelgur og lögn að honum fyrir grávatn og regnvatn. Heitt og kalt vatn rafmagn og ljósleiðari tengt til bráðabirgða við vinnuskúr sem staðsettur verður á kanti fyllingar austan við íbúðarhúsið. Fyrrnefnt gestahús sem kemur fullbúið verður sett á steyptar undirstöður nú í haust og tengt við lagnakerfi. Það verður notað sem dvalarstaður meðan á bygginu íbúðarhússins stendur og síðan nýtt sem gestahús. Áætlað er að hefja byggingu íbúðarhússins að vori árið 2025."
Meðfylgjandi umsókn eru aðaluppdrættir af íbúðarhúsi gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 709521, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 01.07.2024.

Í umsókn um byggingu gestahúss segir m.a.
“Staðsetja á fullbúið hús á einni hæð frá RESTA AS í Litháen á lóðinni Hamar 2 í Hegranesi. Húsið er byggt úr timbri í hólf og gólf á stálramma og verður sett niður á steinsteyptar undirstöður. Húsið er með hallalitlu þaki klæddu með PVC dúk. Húsið verður grátt á lit. Gólfflatarmál 52 fermetrar. Þessi umsókn tengist umsókn um byggingu íbúðarhússs á lóðinni Hamar 2. Gestahúsið sem kemur fullbúið verður sett á steyptar undirstöður nú í haust og tengt við lagnakerfi. Það verður notað sem dvalarstaður meðan á bygginu íbúðarhússins á lóðinni stendur og síðan nýtt sem gestahús. Meðfylgjandi eru vottanir varðandi framleiðslu á húsunum."
Meðfylgjandi umsókn eru aðaluppdrættir af gestahúsi gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdráttur í verki 709521, númer A-101, dagsettur 01.07.2024.
Þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir falla undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna og bókunar skipulagsnefndar varðandi byggingarreit frá 14.12.2023.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að hafna erindinu og leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði heimilað að láta vinna deiliskipulag fyrir svæðið á eigin kostnað sbr. 2. mrg 38. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

9.Kleifatún 2 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2407165Vakta málsnúmer

Hafsteinn L. Sigurðarson og Júlía Ó. Gestdóttir lóðarhafar Kleifartúns 2 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að fá að breikka innkeyrsluna að lóðinni. Sótt er um 3,8 metrar breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins.
Með fylgir afstöðumynd sem gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið. Framkvæmdin skal unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

10.Kleifatún 4 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2407166Vakta málsnúmer

Ingvar Gýgjar Sigurðarson og Eygló Amelía Valdimarsdóttir lóðarhafar Kleifartúns 4 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að fá að breikka innkeyrsluna að lóðinni. Sótt er um 3,8 metrar breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins.
Með fylgir afstöðumynd sem gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið. Framkvæmdin skal unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

11.Melatún 4 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á aðkomu lóðar.

Málsnúmer 2407175Vakta málsnúmer

Guðmundur H. Loftsson og Helga F. Salmannsdóttir þinglýstir lóðarhafar lóðar nr. 4 við Melatún á Sauðárkróki óska eftir heimild til að fá að breikka innkeyrslu að lóðinni. Sótt er um breikkun úr 5 m í 6m, þ.e. 1 metra í suður og að stútur verði steyptur í stað malbiks. Einnig óska lóðarhafar um heimild til að setja skrautmöl í stað gras 6.5 metra suður af bílastæði, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins.
Með fylgir afstöðumynd sbr. Aðaluppdrátt sem samþykktur var af skipulags-og byggingarfulltrúa Skagafjarðar þann 29.5.2019 sem gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið. Framkvæmdin skal unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

12.Fellstún 9 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Auður Steingrímsdóttir og Guðmundur Sveinsson lóðarhafar Fellstúns 9 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að fá að breikka innkeyrslu að lóðinni.
Sótt er um 3,9 metra breikkun til suðurs yfir lagnasvæði sveitarfélagsins.
Með fylgir afstöðumynd sem gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið. Framkvæmdin skal unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

13.Ægisstígur 3 og 5 - Umsókn um breytingu lóðamarka

Málsnúmer 2407187Vakta málsnúmer

Thelma Knútsdóttir lóðarhafi Ægisstígs 3 og Jón Geirmundsson og Arna Björk Arnarsdóttir lóðarhafar Ægisstígs 5 neðri hæð og Leigufélagið Bríet eigandi að Ægisstíg 5 efri hæð sækja um breytingu á afmörkun framangreindra lóða ásamt því að byggja girðingu/vegg á lóðarmörkum. Sjá meðfylgjandi skjöl sem eru umsókn, uppdráttur og samþykktir milli eigenda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið og felur skipulagsfulltrúa að láta vinna lóðarblöð og gera nýja lóðarleigusamninga við hlutaðeigandi.
Varðandi girðingu á lóðarmörkum þá vísar skipulagsnefnd þeim þætti umsóknarinnar til byggingarfulltrúa.

14.Nestún 4 - Lóð skilað

Málsnúmer 2407184Vakta málsnúmer

Árni Max Haraldsson og Inga Jóna Sveinsdóttir lóðarhafar Nestúns 4 óska eftir með tölvupósti dags. 23.07.2024 að skila inn lóðinni til sveitarfélagsins.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða skil á lóðinni og mun lóðin vera auglýst til úthlutunar í samræmi við gildandi úthlutunarreglur sveitarfélagsins.

15.Nestún 12 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2407185Vakta málsnúmer

Árni Max Haraldsson og Inga Jóna Sveinsdóttir sækja um einbýlishúsalóðina Nestún 12.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Nestún 12 til umsækjanda.

16.Umsagnarbeiðni; Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 - Blöndulína 3 - mál 0793 2024

Málsnúmer 2407003Vakta málsnúmer

Lagt fram að Hörgársveit hafi óskað eftir umsögn Skagafjarðar varðandi breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012- 2024. Kynningartíminn er liðinn en hann var frá 1.7.2024 til 29.07.2024 á meðan skipulagnefndin var í sumarleyfi.

17.Umsagnarbeiðni mál nr 0859 2024 í Skipulagsgátt, Skilgreining nýrra efnistökusvæða Breyting á aðalskipulagi Húnabyggðar

Málsnúmer 2407039Vakta málsnúmer

Lagt fram að Húnabyggð hafi óskað eftir umsögn Skagafjarðar varðandi breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2012- 2022. Kynningartíminn er liðinn en hann var frá 3.7.2024 til 3.08.2024 á meðan skipulagnefndin var í sumarleyfi.

18.Samráð; Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um merki fasteigna nr 160 2024

Málsnúmer 2407055Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024.
Þann 1. janúar sl. tók gildi nýr kafli laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sem fjallar um merki fasteigna. Þar er að finna ákvæði sem snúa að skyldu eigenda til þess að gera merkjalýsingu um fasteign sína, kröfur til merkjalýsenda og að lokum ákvæði um meðferð ágreinings um merki fasteigna. Þar er gert ráð fyrir að sé ágreiningur milli eigenda um merki fasteigna geti þeir leitað sátta fyrir milligöngu sýslumanna. Þann 10. febrúar sl. tók gildi reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 þar sem fjallað er um merkjalýsingar, merkjalýsendur og menntun þeirra.
Í drögum að breytingu á reglugerð 160/2024, sem birt er hér til samráðs, er lagt til að við reglugerðina bætist nýr kafli um sáttameðferð sýslumanna.
Þar er að finna nánari útfærslu á ákvæðum 6. gr. g-h laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001. Í drögunum er fjallað um upphaf sáttameðferðar, gagnaöflun, framkvæmd sáttameðferðar og útgáfu sáttavottorðs náist ekki sættir. Þá er að lokum fjallað um málskostnað en skv. 6. gr. h laga nr. 6/2001 er gert ráð fyrir að kostnaður við sáttameðferð greiðist af málsaðilum. Umsagnartíminn er til og með 23.08.2024.
Sjá nánar hér: https://island.is/samradsgatt/mal/3774.

Fundi slitið - kl. 12:00.