Fara í efni

Gjaldskrá gatnagerðargjalda, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2025

Málsnúmer 2410033

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 117. fundur - 18.10.2024

Lögð fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði, með gildistíma frá 1. janúar 2025.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða samþykkt og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 31. fundur - 23.10.2024

Vísað frá 117. fundi byggðarráðs frá 18. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
„Lögð fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði, með gildistíma frá 1. janúar 2025.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða samþykkt og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.“

Framlögð gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.