Borgarröst 3 - Umsókn byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2411117
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 52. fundur - 21.11.2024
Róar Örn Hjaltason sækir um leyfi til að gera breytingar á innangerð og útliti iðnaðarhúsnæðis með fasteignanr. F2228081 sem stendur á lóðinni númer 3 við Borgarröst. Breytingar varða milliloft og innkeyrsluhurð. Framlagður uppdráttur gerður af Guðmundi Þór Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur í verki 0824, númer A-01, dagsettur 28.10.2024. Fyrir liggur samþykki eiganda með fasteinganr. F2131309, F2228079 og F2228080. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild veitt.