Menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd
Ár 1999, fimmtudaginn 8. júlí, kom menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd saman á Skrifstofu Skagafjarðar kl.1700.
Mætt voru: Ásdís Guðmundsdóttir, Helgi Thorarensen, Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Jón Garðarsson og Gísli Eymarsson. Auk þeirra Snorri Björn Sigurðsson, sveitarstjóri.
DAGSKRÁ:
- Styrkir til íþróttamála
- Samningur um rekstur og umhirðu íþróttavallasvæða.
AFGREIÐSLUR:
1. Eftirfarandi styrkbeiðnir hafa borist:
Umf. Tindastóll |
kr. |
9.000.000,- |
Golfklúbbur Sauðárkróks |
kr. |
1.000.000,- |
Umf. Neisti |
kr. |
900.000,- |
Umf. Smári |
kr. |
1.000.000,- |
Hestamannafélagið Léttfeti |
kr. |
250.000,- |
Ungmennasamband Skagafjarðar |
kr. |
1.700.000,- |
Umf. Hjalti |
kr. |
400.000,- |
Skotfélagið Ósmann |
kr. |
100.000,- |
Samþykkt að veita eftirfarandi styrki:
Umf. Tindastóll |
kr. |
4.000.000,- |
Golfklúbbur Sauðárkróks |
kr. |
800.000,- |
Umf. Neisti |
kr. |
525.000,- |
Umf. Smári |
kr. |
350.000,- |
Hestamannafélagið Léttfeti |
kr. |
210.000,- |
Ungmennasamband Skagafjarðar |
kr. |
1.000.000,- |
Umf. Hjalti |
kr. |
140.000,- |
Úthlutun til Léttfeta byggist á því að hluta styrksins verði varið til reksturs reiðskóla fyrir börn.
Þá samþykkir m.í.æ. að styrkja Skotfélagið Ósmann um kr. 50.000,- sem færist á liðinn íþr.- og æskulýðsmál óskipt.
Ofangreint samþykkt með 4 atkvæðum.
Helgi Thorarensen óskar bókað að hann sitji hjá þar eð hann telur að meiri undirbúningsvinna hefði þurft að eiga sér stað áður en ákvörðun var tekin.
2. Lagður fram samningur við Umf. Tindastól um rekstur og umhirðu íþróttavallasvæða frá og með 15.05.99 – 15.09.99. Hljóðar samningurinn upp á kr. 1.600.000,-.
Samningurinn borinn upp og samþykktur.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið.