Veitustjórn
Ár 1998, miðvikudaginn 1. júlí, kom nýkjörin veitustjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði saman til fyrsta fundar síns í Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki kl. 18,00. Mætt eru: Árni Egilsson, Einar Gíslason, Ingimar Ingimarsson, Sigrún Alda Sighvats og Snorri Styrkársson, öll veitustjórnarfólk. Auk þeirra voru mættir Páll Pálsson, veitustjóri, Sigurður Ágústsson, rafveitustjóri og Snorri Björn Sigurðsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
- Kosning formanns.
- Kosning varaformanns.
- Kosning ritara.
- Útboðið “Hitaveita Skagafjarðar, vinnuútboð 1998.”
- Norðlensk orka.
- Umsókn v/jarðhitaleitarátaks á köldum svæðum.
- Skoðunarferð.
Afgreiðslur:
1. Í upphafi fundar lýsti sveitarstjóri eftir tillögum um formann. Fram kom tillaga um Árna Egilsson. Þar eð fleiri tillögur bárust ekki skoðast hann réttkjörinn.
2. Tók Árni nú við fundarstjórn og lýsti eftir tillögum um varaformann. Fram kom tillaga um Einar Gíslason. Þar eð fleiri tillögur bárust ekki skoðast hann réttkjörinn.
3. Þá var lýst eftir tillögum um ritara og kom fram tillaga um Sigrúnu Öldu Sighvats. Þar eð fleiri tillögur bárust ekki skoðast hún réttkjörin.
Nú kom Bragi Þór Haraldsson tæknifr. á Stoð ehf á fundinn.
4. Þ. 22. júní sl. voru opnuð tilboð í verkið “Hitaveita Skagafjarðar, vinnuútboð 1998.” Eftirfarandi tilboð bárust:
|
Tilboðsupph. við opnun |
Tilboðsupph. eftir yfirferð |
% |
G.V. gröfur ehf, Akureyri |
20.769.040 |
20.769.040 |
99.3 |
Símon Skarphéðinsson, Skr. |
21.318.775 |
21.318.775 |
101.9 |
Árvirki ehf og Eik ehf, Blönduósi |
22.099.880 |
22.099.880 |
105.6 |
Steypustöð Blönduóss ehf |
22.357.254 |
22.432.805 |
107.2 |
Verkiðn ehf., Rvk. |
23.072.000 |
23.072.000 |
110.3 |
Hafnarverk ehf, Akureyri |
24.520.000 |
23.521.000 |
112.4 |
Pípulagnaverktakar ehf, Blönduósi |
23.584.000 |
23.584.000 |
112.7 |
Þorkell Pálsson, Akureyri |
34.256.500 |
34.256.500 |
163.7 |
Áveitan ehf, Sandgerði |
41.132.900 |
41.132.900 |
196.6 |
Kostnaðaráætlun Stoðar ehf |
20.918.450 |
|
100.0 |
Þá var kynnt greinargerð Stoðar ehf v. skoðunar á lægstbjóðendum.
Afgreiðslu málsins frestað.
5. Rætt um málefni “Norðlenskrar orku”.
6. Veitustjóri kynnti umsókn sem hann hefur sent v. jarðhitaleitar við Hofsós. Er þessi umsókn v. jarðhitaleitarátaks á köldum svæðum. Sótt var um styrk upp á kr. 2.000.000 sem miðast við að heildarkostnaður sé kr. 4.000.000.
Veitustjórn er samþykk umsókn veitustjóra.
7. Að lokum fór veitustjórn í skoðunarferð.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið.
Snorri Björn Sigurðsson
Snorri Styrkársson
Páll Pálsson
Einar Gíslason
Sigurður Ágústsson
Árni Egilsson
Sigrún Alda Sighvats
Ingimar Ingimarsson