Veitustjórn
Ár 1998, miðvikudaginn 9. september, kom veitustjórn saman á skrifstofu Skagafjarðar kl. 1615. Mætt voru: Árni Egilsson, Sigrún Alda Sighvats, Ingimar Ingimarsson, Páll Sighvatsson og Snorri Styrkársson. Auk þeirra voru mættir Páll Pálsson, veitustjóri og Snorri Björn Sigurðsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
- Skerðing á umframraforku.
- Ferðaskýrsla rafveitustjóra.
- Bréf frá Guðmundi Márussyni.
- Sölufyrirkomulag á heitu vatni.
- Innheimta heimæðagjalda og greiðslufyrirkomulag.
- Starfsmannamál.
Afgreiðslur:
1. Rafveitustjóri gerði grein fyrir stöðu mála hvað varðar skerðingu á umframraforku frá Landsvirkjun til Steinullarverksmiðjunnar.
2. Rafveitustjóri gerði grein fyrir ferð á vegum Samorku til Englands, þar sem þátttakendur kynntu sér rekstur rafveitna.
3. Lagt fram bréf frá Guðmundi Márussyni í Varmahlíð, þar sem hann óskar eftir að fá heitt vatn í sumarhús, sem hann er að byggja í landi Garðhúsa, miðað við að fá þessa lögn á lágmarksgjaldi.
Veitustjórn treystir sér ekki til að leggja heimæð skv. lágmarksgjaldskrá en er tilbúin til að láta leggja heimæð á kostnaðarverði.
4. Veitustjórn samþykkir að notendur heits vatns geti valið um hvort heitt vatn sé keypt samkvæmt rennslismæli eða hemli. Í dreifbýli skal gjaldskrá hitastigs leiðrétt skv. reiknilíkani Stoðar hf. Reiknilíkanið verður leiðrétt í ljósi fenginnar reynslu.
5. Veitustjórn samþykkir að almenna reglan skuli vera sú að heimæðagjöld séu staðgreidd.
6. Rætt um starfsmannamál í Varmahlíð.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið.
Sigurður Ágústsson
Snorri Björn Sigurðsson
Páll Pálsson
Árni Egilsson
Sigrún Alda Sighvats
Ingimar Ingimarsson
Páll Sighvatsson
Snorri Styrkársson