Veitustjórn
Miðvikudaginn 8. desember 1999 kom veitustjórn saman til fundar á Skrifstofu Skagafjarðar kl. 1330.
Mætt voru: Árni Egilsson, Einar Gíslason, Sigrún Alda Sighvats, Ingimar Ingimarsson og Snorri Styrkársson ásamt Páli Pálssyni og Sigurði Ágústssyni.
DAGSKRÁ:
- Vatnsskattur fyrir árið 2000.
- Önnur mál.
Formaður setti fundinn.
AFGREIÐSLUR:
1. Veitustjórn samþykkir að vatnsskattur Vatnsveitu Skagafjarðar fyrir árið 2000 nemi 0,17% af álagningarstofni fasteignamats. Hámarksgjald verði kr. 24 fyrir m3 og lágmark kr. 20.
2. Önnur mál: Veitustjórn óskar eftir fundi við stjórn Vatnsveitufélags Varmahlíðar.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt kl. 1400.
Einar Gíslason
Sigurður Ágústsson
Ingimar Ingimarsson
Páll Pálsson
Árni Egilsson
Sigrún Alda Sighvats
Snorri Styrkársson