Veitustjórn
Veitustjórn Skagafjarðar
Fundur 45 – 09.05.2001
Miðvikudaginn 9. maí árið 2001 kom veitustjórn saman kl. 16.30. á skrifstofu sveitarfélagsins.
Mættir voru veitustjórnarmennirnir: Árni Egilsson, Einar Gíslason, Sigrún Alda Sighvats, Ingvar Guðnason og Ingimar Ingimarsson, ásamt veitustjórunum Sigurði Ágústssyni og Páli Pálssyni.
DAGSKRÁ:
- Samorkufundur á Ísafirði.
- Þátttaka í Net-orku hf.
- Jarðhitaleit út að austan.
- Bréf frá byggðarráði v/þriggjafasa rafmagns í sveitum.
- Ársfundur Rarik á Blönduósi
- Bréf frá umhverfis-og tækninefnd.
- Tilboð vegna endurnýjunar stofnæðar hitaveitu, Grófargil - Marbæli og hitalögn að sumarhúsum á Steinsstöðum.
- Hitalögn að sumarhúsum í landi Víðimels og dæluhús að Steinstöðum
- Ársreikningar veitna fyrir árið 2000, fyrri umræða.
- Önnur mál.
a) Málefni Vatnsveitufélags Varmahlíðar.
Formaður setti fundinn kl.16.00 og bauð fundarmenn velkomna.
AFGREIÐSLUR:
1. Boðað er til fagfundar raforkusviðs Samorku á Ísafirði 31.05 og 01.06. 2001. Veitustjórn samþykkir að rafveitustjóri og þeir veitustjórnarmenn, sem sjá sér það fært, sæki fundinn.
2. Veitustjórn samþykkir að Raf- og Hitaveita gerist hluthafar í fyrirtækinu Net-orku hf fyrir upphæð að nafnvirði kr.442.623,- á genginu 1,83.
3. Páll Pálsson gerði grein fyrir grófri athugun á kostnaði við byggingu og rekstur hitaveitu “út að austan” ásamt kostnaði við leit að vatninu. Athugunin er unnin af verkfræðist. Stoð, dags. 9. maí 2001. Veitustjórn samþykkir áframhaldandi vinnu við leit að vatni samkv. fjárhagsáætlun, enda liggur fyrir vilyrði fyrir styrk kr. 2.000.000.- vegna jarðhitaleitar á köldum svæðum..
4. Byggðarráði hefur borist bréf frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti dags. 27.03.2001 er varðar þrífösun rafmagnskerfa í sveitum. Veitustjórn felur rafveitustjóra að vinna að málinu fyrir næsta veitustjórnarfund.
5. Bréf hefur borist til rafveitu og til sveitarstjórnar með boði um að senda fulltrúa á ársfund Rarik á Blönduósi 18. maí nk. Veitustjórn samþykkir að rafveitustjóri og þeir veitustjórnarmenn, sem sjá sér fært, sæki ársfundinn.
6. Borist hefur bréf frá Jóni Berndsen, byggingafulltrúa, dags. 4. apríl 2001, er varðar vinnu við stefnumótun aðalskipulags fyrir Skagafjörð. Veitustjórn samþykkir að fá byggingafulltrúa og ráðgjafa verkefnisins á næsta fund veitustjórnar.
7. Tilboð sem bárust í útboðsverk hitaveitu vegna endurnýjunar á stofnlögn milli Grófargils og Marbælis og í sumarbústaðabyggð að Steinstöðum voru opnuð 2. maí sl. Alls bárust 8 tilboð. Kostnaðaráætlun Stoðar ehf. nam kr. 22.400.000.- Eftirfarandi boð bárust: Vinnuvélar Símonar Skarphéðinssonar kr. 15.500.291.- 69,7 % Steypustöð Skagafjarðar 16.344.850.- 73% Árvirki ehf. 17.882.730.- 79,8% S.E.-verktakar kr. 18.665.526.- 83,3 % G.V.- gröfur ehf. 19.180.060.- 85,6 % Rafmagnsverkstæði Birgis ehf. 24.370.000.- 108,8 % R.B.G. vélaleiga verktakar ehf. 26.711.685.- 119,2 % Borgarverk ehf. 29.320.200.- 130,9 % . Veitustjórn samþykkir að taka lægsta tilboði og felur veitustjóra að ganga til samninga við Símon Skarphéðinsson ehf. á Sauðárkróki.
8. Veitustjórn samþykkir að fela veitustjóra að leita samninga við Símon Skarphéðinsson á grundvelli einingaverðs fyrra tilboðs, vegna lagna í sumarhúsabyggð í Víðimel.
9. Veitustjórn samþykkir að vísa ársreikningi Rafveitu Sauðárkróks fyrir árið 2000 til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Rekstrartekjur eru kr. 133.086.497
Rekstrargjöld eru kr. 139.181.509
Fjármunatekjur kr. 3.438.595
Tap ársins kr. kr. 2.656.417
Veltu fé frá rekstri kr. 6.653.059
Skuldir og eigið fé kr. 193.520.475
Veitustjórn samþykkir að vísa ársreikningi Vatnsveitu Skagafjarðar fyrir árið 2000
til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Rekstrartekjur eru kr. 25.482.404
Rekstrargjöld eru kr. 15.017.168
Fjármunatekjur/(gjöld) kr. (287.478)
Hagnaður f.aðra liði kr. 10.177.758
Afgjald til sveitarsj. kr. (10.000.000)
Hagnaður ársins kr. 177.758
Veltufé frá rekstri kr. 5.186.928
Skuldir og eigið fé kr. 91.210.801
Veitustjórn samþykkir að vísa ársreikningi Hitaveitu Skagafjarðar fyrir árið 2000
til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Rekstrartekjur eru kr. 82.503.561
Rekstrargjöld eru kr. 48.709.473
Fjármunatekjur /(gjöld) kr. (2.728.331)
Hagnaður f. aðra liði kr 31.065.757
Afgjald til sveitarsj. kr. 13.000.000
Hagnaður ársins kr. 18.065.757
Veltufé frá rekstri kr. 35.498.782
Skuldir og eigið fé kr. 334.041.018
10. Önnur mál:
a) Rætt var um stöðu mála og fyrirhuguð verkefni við vatnsveituna í Varmahlíð.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl.18.40.
Sigurður Ágústsson, ritari.
Árni Egilsson
Ingvar Guðnason
Sigrún Alda Sighvats
Ingimar Ingimarsson
Einar Gíslason