Veitustjórn
Veitustjórn Skagafjarðar
Fundur 56 – 18.12.2001
Þriðjudaginn 18. des. árið 2001 kom veitustjórn saman kl. 18.00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Mættir voru veitustjórnarfulltrúarnir: Snorri Styrkársson, formaður, Árni Egilsson, Sigrún Alda Sighvats, Einar Gíslason og Ingimar Ingimarsson ásamt veitustjórunum Sigurði Ágústssyni og Páli Pálssyni. Einnig sat Margeir Friðriksson fjármálastjóri fundinn að hluta.
DAGSKRÁ:
- Sameining Hita-og Vatnsveitu Skagafjarðar.
- Fjárhagsáætlun Hitaveitu Skagafjarðar fyrir árið 2002, fyrri umræða.
- Fjárhagsáætlun Vatnsveitu Skagafjarðar fyrir árið 2002, fyrri umræða.
- Stjórnarfundir í Héraðsvötnum ehf. og Norðlenskri-orku ehf.
- Önnur mál
Formaður setti fund kl. 18.10
AFGREIÐSLUR:
1. Formaður gerði grein fyrir sameiningu Hita- og vatnsveitu Skagafjarðar, með tilliti til lagabreytingar á Alþingi sem fyrirhugaðar eru að vori og yfirfór forsendur fyrir áætluðum efnahags- og rekstrarreikningi ásamt sjóðstreymi sameinaðs fyrirtækis. Formaður lagði fram eftirfarandi tillögu, sem veitustjórn samþykkti:
Veitustjórn samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að sameina Hitaveitu Skagafjarðar og Vatsveitu Skagafjarðar í eitt öflugt orkufyrirtæki miðað við 31. desember 2001. Stofnað verður nýtt fyrirtæki sem heiti Skagafjarðarveitur.
Þannig verður til eitt veitufyrirtæki sem standa mun að öflun, flutningi og sölu á heitu og köldu vatni í Skagafirði. Eigið fé fyrirtækisins verði um 40% af heildareignum.
Helsta markmiðið með hinu nýja fyrirtæki, til lengri tíma litið, er að hagræða í rekstri, auka skilvirkni og einfalda stjórnun. Það eru áform veitustjórnar að með sameiningunni verði lagður grunnur að því að stofna síðar sjálfstætt hlutafélag um veitufyrirtækið. Það hlutafélag verður þó ekki stofnað fyrr en nauðsynlegar lagabreytingar hafa verið gerðar á Alþingi sem heimila að vatsveitur verði reknar í slíku hlutafélagi.
Samhliða sameiningu veitnanna í eitt fyrirtæki samþykkir veitustjórn að lækka eigið fé veitnanna um 200 milljónir króna í samræmi við framlagða útreikninga. Helstu tillögur endurskoðandans um áætlaðan stofnefnahagsreikning Skagafjarðarveitu og rekstrarreikning fyrir árið 2002 eru:
Efnahagsreikningur:
Fastafjármunir samtals 458.800.000
Veltufjármunir samtals 25.000.000
Samtals eignir 483.800.000
Eigið fé 192.500.000
Skuldbindingar 11.500.000
Langtímaskuldir 246.339.000
Skammtímaskuldir 33.461.000
Samtals skuldir og eigið fé 483.800.000
Rekstrarreikningur:
Rekstrartekjur 114.361.000
Rekstrargjöld 66.280.000
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 26.000.000
Hagnaður ársins 22.081.000
Gert er ráð fyrir að sjóðstreymi skili um 49 milljónum króna til greiðslu afborgana, greiðslu arðs eða afgjalds og framkvæmda.
Að því er stefnt að lengja langtímaskuldir fyrirtækisins til a.m.k. 15 –20 ára þannig að greiðslubyrði langtímalána verði ekki hærri en 13 - 19 milljónir króna á ári og að möguleikar fyrirtækisins til framkvæmda verði a.m.k. 25 - 30 milljónir króna á ári að jafnaði. Jafnframt er að því stefnt að fyrirtækið geti greitt arð sem nemur allt að 7% af eiginfjárreikningum fyrirtækisins. Ekki verði greitt afgjald á árinu 2002.
Veitustjórn mun á næstu vikum gera nánari tillögur um framkvæmd sameiningarinnar s.s. um stjórnskipulag og stjórnun, framtíðar rekstrarfyrirkomulagi ásamt samþykktum fyrir Skagafjarðarveitu, markmið og tilgang.
2. Veitustjóri lagði fram og fjármálastjóri yfirfór fjárhagsáætlun Hitaveitu Skagafjarðar fyrir árið 2002. Gjaldaliðir eru kr.90.825.000. - og tekjuliðir kr. 98.300.000. - Handbært fé frá rekstri er kr. 23.275.000. - og fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum kr.25.475.000. - Veitustjórn samþykkir að vísa áætluninni til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn.
3. Veitustjóri lagði fram og fjármálastjóri yfirfór fjárhagsáætlun Vatnsveitu Skagafjarðar fyrir árið 2002. Gjaldaliðir eru kr. 23.245.000.- og tekjuliðir kr. 27.700.000.- Handbært fé frá rekstri er kr. 9.855.000.- og fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum kr. 8.650.000.- Veitustjórn samþykkir að vísa áætluninni til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn. Nú vék fjármálastjóri af fundi.
4. Rafveitustjóri gerði grein fyrir fundi í stjórn Héraðsvatna þann 17.12. sl. og fundi í stjórn Norðlenskrar-orku ehf. frá í dag og dreifði fundargerð þess síðarnefnda. Veitustjórn telur ekki tímabært á þessu stigi máls að taka afstöðu til hlutafjáraukningar í Norðlenskri-orku ehf. þar sem endanlegur úrskurður um umhverfismat liggur ekki fyrir.
5. Önnur mál. Rætt um starfsmannamál við rekstrarlok rafveitu.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl. 20.15
Snorri Styrkársson Fundarritari: Sigurður Ágústsson
Árni Egilsson
Páll Pálsson
Sigrún Alda Sighvats
Ingimar Ingimarsson