Fara í efni

Auglýsing um skipan í kjördeildir í Skagafirði

19.11.2024

Við kosningar til Alþingis sem fram fara laugardaginn 30. nóvember nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:

Kjördeild í Bóknámshúsi FNV, Sauðárkróki

Þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs-, Rípur- og Skefilsstaðahreppa. Kjörfundur hefst kl. 09:00.

Kjördeild í Höfðaborg, Hofsósi

Þar kjósa íbúar fyrrum Hofs-, Fljóta-, Hóla- og Viðvíkurhreppa. Kjörfundur hefst kl. 10:00.

Kjördeild í Varmahlíðarskóla

Þar kjósa íbúar fyrrum Staðar-, Seylu-, Akra- og Lýtingsstaðahreppa. Kjörfundur hefst kl. 10:00.

 

Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.

Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 en þeir kjósendur sem hafa gefið sig fram þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.

Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki frá kl. 09:00 - 15:00 virka daga frá 7. nóvember.

 

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki.

Yfirkjörstjórn.