Hrekkjavaka í Glaumbæ!
Það verður hryllilega gaman í Glaumbæ föstudaginn 1. nóvember frá kl. 17-20! Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá.
Draugasögur verða sagðar í baðstofunni. Í Áshúsi verður vinnustofa og föndur fyrir alla fjölskylduna þar sem verður m.a. hægt að skera út grasker og rófur. Í kaffihúsinu verða léttar og hræðilegar veitingar á boðstólnum.
Börn 12 ára og yngri skulu vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts. Aðgangur er ókeypis fyrir börn undir 18 ára aldri og grímuklædda fullorðna.
Við minnum á ársmiðana þar sem íbúar héraðsins þurfa einungis að greiða aðgangseyri einu sinni (2000 kr. almennt verð en 1.700 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn) og fá þá miða sem gildir í heilt ár frá kaupum og geta í kjölfarið komið hvenær sem er og eins oft og þeir vilja þeim að kostnaðarlausu.
Endilega fylgist með og skráið komu ykkar á viðburðinum á Facebook síðu safnsins.