Nýja rennibrautin í sundlauginni í Varmahlíð vígð
23.10.2018
Í gær fór fram formleg vígsla rennibrautarinnar í sundlauginni í Varmahlíð við mikinn fögnuð viðstaddra. Það voru þau Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hrefna Jóhannesdóttir, oddviti Akrahrepps, sem klipptu á borðann. Unnur María Gunnarsdóttir, nemandi við Varmahlíðarskóla, vígði svo brautina og fór fyrstu bununa í brautinni.
Sundlaugin í Varmahlíð er opin sem hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga kl 9-21
Föstudaga kl 9-14
Laugardaga kl 10-15
Vegna framkvæmda við sundlaugina á Sauðárkróki er fyrirhugað að lengja opnunartíma sundlaugarinnar í Varmahlíð fram að áramótum. Opnunartími verður nánar auglýstur síðar.