Fara í efni

Opin vinnustofa um athafnarsvæði á Sauðárkróki haldin í Ljósheimum í dag kl. 16

24.10.2024

Við vekjum athygli á opinni vinnustofu Skipulagsnefndar Skagafjarðar í dag vegna frekari hönnunar og hugmyndavinnu fyrir deiliskipulag „Athafnarsvæði á Sauðárkróki AT-403.“ Vinnustofan fer fram í Ljósheimum frá kl. 16:00- 18:00 í dag.

Skipulagslýsing fyrir svæðið var auglýst 26.06.2024 – 14.08.2024, sjá nánar undir máli nr. 808/2024 á vef Skipulagsgáttarinnar.

Næsta skref í skipulagsferlinu er vinnslutillaga og okkur langar að bjóða öllum sem vilja koma og hitta okkur til að fá fram hvaða áherslur og þarfir almenningur og fyrirtæki/stofnanir sjá fyrir sér á umræddu skipulagssvæði.

Öll velkomin!