Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

28. fundur 12. nóvember 2024 kl. 16:00 - 17:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Hauksson formaður
  • Eyrún Sævarsdóttir aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Merkingar og menningarvitund innan Skagafjarðar

Málsnúmer 2410255Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Gunnari Rögnvaldssyni, dagsett 24.10.2024, um merkingar og menningarvitund innan Skagafjarðar. Í bréfinu hvetur Gunnar sveitarfélagið til að standa betur að merkingum á sýslumörkum inn og út úr Skagafjarðarsýslu. Jafnframt hvetur Gunnar sveitarfélagið til að fara í vitundavakningu um sögu og menningu Skagafjarðar sem hvetur um leið til fróðleiks og kunnáttu um skáld og listafólk héraðsins. Leggur Gunnar til að settar verða upp merkingar á húsum sem voru heimili skálda í Skagafirði sem og setja tilvitnanir í verk höfunda á byggingar í eigu sveitarfélagsins.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar erindinu og samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að taka saman kostnað við gerð skilta á sýslumörkum og staðsetningar á skiltum og leggja fyrir byggðarráð til fjármögnunar. Jafnframt felur nefndin starfsmönnum nefndarinnar að hefja undirbúning að vitundavakningu um sögu og menningu Skagafjarðar sem hvetur um leið til fróðleiks og kunnáttu um skáld og listafólk héraðsins.

2.Umsókn um rekstur Miðgarðs

Málsnúmer 2409271Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Völu Stefánsdóttur, dagsett 24.10.2024, þar sem dregin er til baka umsókn um rekstur Menningarhússins Miðgarðs.
Reksturinn var því auglýstur að nýju þann 29.10.2024.

3.Menningarhúsið Miðgarður - Umsóknir

Málsnúmer 2411063Vakta málsnúmer

Teknar fyrir umsóknir um rekstur Menningarhússins Miðgarðs sem auglýstur var í annað sinn þann 29.10.2024. Umsóknafrestur var til og með 11. nóvember og bárust þrjár umsóknir í reksturinn.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar góðar umsóknir og samþykkir samhljóða að boða alla umsækjendur til viðtals til að ræða betur hugmyndir umsækjenda um nýtingu Miðgarðs.

4.Fjárhagsáætlun 2025 - málaflokkur 13

Málsnúmer 2410101Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun 2025 og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

5.Fjárhagsáætlun 2025 - málaflokkur 05

Málsnúmer 2410100Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun 2025 og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

6.Styrkbeiðni vegna menningarhátíðar þjóðbúningafélaga á landsbyggðinni í Skagafirði

Málsnúmer 2405203Vakta málsnúmer

Tekið fyrir þakkarbréf frá skipuleggjendum Fjallkonuhátíðarinnar í Skagafirði, dagsett 1.11.2024. Hátíðin var haldin í Skagafirði 7. - 8. september sl. og var liður í hátíðarhöldum tengdum 80 ára lýðveldisafmælis Íslands. Viðburðurinn tókst einstaklega vel og voru þátttakendur mjög ánægðir með heimsóknina í Skagafjörð og þá fræðslu sem allrir fengu þessa tvo daga sem hátíðin stóð yfir. Skipuleggjendur þakka nefndinni veittan styrk.

Fundi slitið - kl. 17:00.