Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Ársreikningur 2023
Málsnúmer 2401083Vakta málsnúmer
2.Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
Málsnúmer 2403185Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi, dags. 20. mars 2024, frá Íbúasamtökunum í Varmahlíð, þar sem óskað er samstarfs við sveitarfélagið um uppsetningu frisbígolfvallar á Reykjarhólssvæðinu í Varmahlíð í sumar. Hafa samtökin haft samband við grafískan hönnuð sem hefur séð um hönnun og uppsetningu á slíkum völlum víða um land og er hans mat að 12 körfu völlur með hönnun kosti um 1,2 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um verkefnið og í framhaldinu að fá fulltrúa frá íbúasamtökunum og ungmennafélaginu Smára á fund ráðsins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um verkefnið og í framhaldinu að fá fulltrúa frá íbúasamtökunum og ungmennafélaginu Smára á fund ráðsins.
3.Vatnstjón á tjaldsvæðinu í Varmahlíð
Málsnúmer 2404009Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur, dags. 25. mars 2024, frá rekstraraðila tjaldstæðisins í Varmahlíð. Vatnstjón varð á svæðinu í vetur sem olli skemmdum á tveimur aðstöðuhúsum á svæðinu. Tryggingabætur duga ekki til að lagfæra bæði húsin og hefur salernishús forgang í endurbótum af þeim bótum. Hitt húsið hefur verið nýtt sem inniaðstaða/eldhús fyrir tjaldgesti undanfarin ár og hefur hún verið vel nýtt. Rekstraraðili leitar samstarfs um lagfæringu á inniaðstöðuhúsinu og er reiðubúinn að koma með mótframlag til þess.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja kr. 500 þúsund í framkvæmdina sem tekin er af viðhaldspotti ársins 2024, gegn því að ráðist verði í endurbætur á húsnæðinu á árinu og skal verkið tekið út af starfsmanni eignasjóðs að framkvæmdum loknum. Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

4.Samráð; Kosningar- meðferð utankjörfundaratkvæða
Málsnúmer 2403210Vakta málsnúmer
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 90/2024, "Kosningar- meðferð utankjörfundaratkvæða". Umsagnarfrestur er til og með 08.04.2024.
5.Sundlaug Sauðárkóks. áfangi 2 framkvæmdir 2024
Málsnúmer 2402130Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar niðurstöður útboða á annars vegar raflögnum og hins vegar pípulögnum vegna stækkunar Sundlaugar Sauðárkróks, sem byggðarráð samþykkti að ráðast í á 87. fundi ráðsins og staðfest var á 25. fundi sveitarstjórnar.
Eitt tilboð barst í raflagnir frá Tengli ehf. og var það upp á 80,5% af kostnaðaráætlun. Þrjú tilboð bárust í pípulagnir og var lægstbjóðandi KÞ lagnir ehf. með tilboð upp á 90,2% af kostnaðaráætlun.
Eitt tilboð barst í raflagnir frá Tengli ehf. og var það upp á 80,5% af kostnaðaráætlun. Þrjú tilboð bárust í pípulagnir og var lægstbjóðandi KÞ lagnir ehf. með tilboð upp á 90,2% af kostnaðaráætlun.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2023 námu 8.950 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- og B-hluta, þar af námu rekstrartekjur A-hluta 7.462 millj. kr. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 123 millj. kr. en neikvæð í A-hluta um 128 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2023 nam 4.333 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A-hluta nam 2.262 millj. kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.