Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

26. fundur 26. september 2024 kl. 15:00 - 15:35 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Sigurjón Viðar Leifsson varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Anna Lilja Guðmundsdóttir
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Mat á hæfi kjörinna fulltrúa sveitarstjórna

Málsnúmer 2408237Vakta málsnúmer

Samband íslenskra sveitarfélaga fær mjög reglulega fyrirspurnir um mat á hæfi enda getur verið krefjandi að meta hvort vanhæfi sé til staðar sérstaklega í ljósi þess að skoða þarf samspil samþykkta, sveitarstjórnarlaga og stjórnsýslulaga. Sambandið hefur því tekið saman leiðbeiningar fyrir sveitarstjórnarfólk og nefndarfólk sveitarstjórna við mat á hæfi sem vonandi koma til með að auðvelda sveitarstjórnarfólki að leggja mat á hæfi sitt. Umræddar leiðbeiningar lagðar fram fyrir félagsmála- og tómstundanefnd til kynningar.

2.Samráð; Drög að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk

Málsnúmer 2409216Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 17. september sl. þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 181/2024, "Drög að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk". Í drögunum eru lagðar til breytingar á reglugerðinni sem eiga að bæta gæði, gagnsæi og jafnræði í úthlutun framlaga sjóðsins vegna málaflokksins. Umsagnarfrestur er til og með 01.10.2024. Byggðarráð skrifaði umsögn og bókaði á 114. fundi sínum þann 24. september sl.

3.Fagráð - fjallað um og veitt ráðgjöf um einstök mál

Málsnúmer 2107015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 24. fundargerð fagráðs frá 16. september sl.

4.Barnavernarþjónusta Mið - Norðurlands fundargerðir faghóps

Málsnúmer 2301093Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fimm fundargerðir fagráðs Barnaverndarþjónstu Mið - Norðurlands nr. 52 til 56.

5.Aðsóknartölur sundlauganna 2024

Málsnúmer 2409164Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá frístundastjóra þar sem farið er yfir aðsóknartölur sundlauganna í Skagafirði fyrir árið 2024. Aðsókn fyrstu átta mánuði ársins hefur verið með ágætum. Aðsókn í laugina á Sauðárkróki hefur aukist á milli ára, aðsókn í sundlaugina í Varmahlíð er svipuð á milli ára en aðsókn í laugina á Hofsósi hefur minnkað.

6.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Sauðárkróks 2024

Málsnúmer 2409115Vakta málsnúmer

Rótarýklúbbur Sauðárkróks óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 30. nóvember n.k. vegna jólahlaðborðs Rótarýklúbbsins þar sem íbúum Skagafjarðar er boðið, þeim að kostnaðarlausu. Nefndin samþykkir samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum í ákvörðun sinni þar sem ljóst er að ekki er hægt að halda viðburðinn í öðru húsnæði í sveitarfélaginu.

7.Styrkbeiðni v. leikjanámskeiðs í Varmahlíð sumarið 2024

Málsnúmer 2409202Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um styrk vegna leikjanámskeiða barna í Varmahlíð sumarið 2024. Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar umsókninni og samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 150.000 kr. til íþrótta- og leikjanámskeiða fyrir börn í Varmahlíð og nágrenni. Nefndin óskar eftir því að forsvarsmenn Smára skili inn skýrslu vegna námskeiða þar sem fram kemur hvaða námskeið voru í boði og hver aðsóknin var. Nefndin felur frístundastjóra að óska eftir ofangreindum upplýsingum.

8.Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2025

Málsnúmer 2409280Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að fjárhæðir greiðslna vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2025 taki mið af meðlagsgreiðslum eins og þær eru í júní 2024 kr. 46.147.
Umönnunarflokkur 1 greitt 85% af meðlagi samtals kr. 39.225 pr. sólarhring.
Umönnunarflokkur 2 greitt 75% af meðlagi samtals kr. 34.610 pr. sólarhring.
Umönnunarflokkur 3 greitt 50% af meðlagi samtals kr. 23.074 pr. sólarhring.
Greitt er fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldu sem veittar eru á grundvelli barnaverndarlaga skv. 2.fl. umönnunarmats frá Tryggingarstofnun ríkisins. Greitt er fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldu sem veittar eru á grundvelli félagsþjónustulaga skv. 3.fl. umönnunarmats frá Tryggingarstofnun ríkisins. Vísað til byggðaráðs.

9.Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2025

Málsnúmer 2409282Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að taka mið af útreikningum NPA miðstöðvarinnar við útreikning jafnaðarstunda árið 2025. Miðað er við þrjá mismunandi taxta sem endurspegla þarfir notenda þjónustunnar. Jafnaðarstund felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), framlag til umsýslukostnaðar (10%) og framlag til starfsmannakostnaðar (5%). Greiðsluviðmið verða samkvæmt uppreiknuðum jafnaðartaxta NPA miðstöðvarinnar 1. janúar 2025. Vísað til byggðarráðs.

10.Gjaldskrá Iðju Hæfingar við Sæmundarhlíð

Málsnúmer 2409283Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að hlutur notenda Iðju í fæðiskostnaði fyrir hádegisverð hækki um 3,7% úr 702 kr. í 728 kr., sem er um helmings kostnaður við máltíðina. Notendur greiða ekki fyrir morgun- og síðdegishressingu. Vísað til byggðarráðs.

11.Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu

Málsnúmer 2403003Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá félagsmála- og tómstundanefndar á 17. fundi þann 11. mars sl. Lagður fram tölvupóstur frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála dags. 17. september sl. þar sem lagðar eru fram niðurstöður frumkvæðisathugunar á stöðu uppfærslu stoð- og stuðningsþjónustureglna sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 15:35.