Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

104. fundur 01. júní 2015 kl. 14:00 - 14:50 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir varaform.
  • Björg Baldursdóttir áheyrnarftr.
  • Sigríður Garðarsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Hanna Þrúður Þórðardóttir varam.
  • Broddi Reyr Hansen áheyrnarftr. foreldra leiksk.barna
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Óskar G. Björnsson grunnskólastjóri
  • Steinunn Ragnheiður Arnljótsdóttir leikskólastjóri
  • Rúnar Vífilsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir fræðslustjóri
Dagskrá
Broddi Reyr Hansen og Steinunn Arnljótsdóttir sátu fundinn undir lið 1. Óskar G. Björnsson og Jóhanna S. Traustadóttir sátu allan fundinn. Sveinn Sigurbjörnsson sat fundinn undir lið 4.

1.Skóladagatöl leikskóla 2015-2016

Málsnúmer 1505206Vakta málsnúmer

Kynnt voru skóladagatöl leikskólans fyrir skólaárið 2015-2016. Skóladagatölin hafa verið til umsagnar hjá foreldraráðum lögum samkvæmt. Nefndin samþykkir dagatölin.

2.Skóladagatöl grunnskóla 2015-2016

Málsnúmer 1505117Vakta málsnúmer

Kynnt voru skóladagatöl grunnskólanna fyrir skólaárið 2015-2016. Skóladagatölin hafa verið til umsagnar hjá skólaráðum lögum samkvæmt. Nefndin samþykkir dagatölin.

3.Erasmus+ Umsókn vegna ytra mats í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 1503135Vakta málsnúmer

Kynntur var styrkur sem sveitarfélagið/fræðsluþjónustan fékk úr Erasmus+ áætluninni vegna kynningar og innleiðingar á ytra mati í leik- grunn- og tónlistarskólum Skagafjarðar. Styrkurinn er upp á 22.860 evrur eða sem samsvarar til 3,4 milljónum króna.

4.Bréf og greinargerð um nám á framhaldsstigi í tónlistarskólum

Málsnúmer 1505187Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá stjórnendum í tónlistarskólum .

Fundi slitið - kl. 14:50.