Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

3. fundur 16. maí 2024 kl. 09:00 - 11:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
  • Hrólfur Þeyr Hlínarson varam.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Valur Valsson verkefnastjóri
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Umhverfisdagar 2024

Málsnúmer 2404146Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið mæta Sigurjón Þórðarson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og Þorsteinn Þorvarðarson starfsmaður Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til að ræða úrræði sem hægt er að beita til fegrunar umhverfis. Tilefnið eru Umhverfisdagar Skagafjarðar 7.-14. júní næstkomandi.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir að skora á fyrirtæki og einstaklinga til sjávar og sveita að taka til og fegra sitt nærumhverfi. Jafnframt minnum við á að einstaklingar geta losað sig við úrgang gjaldfrjálst á móttökustöðvum sveitarfélagsins. Jafnframt ákveðið að skrifa þeim aðilum sem leigja aðstöðu á gámasvæðum sveitarfélagsins og skora á þá að fegra sitt svæði. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

2.Kaldavatnsveitur 5 ára framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 2111213Vakta málsnúmer

Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skagafjarðarveitna fer yfir fimm ára verkáætlun kaldavatnsframkvæmdir í Skagafirði með nefndarmönnum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fá fulltrúa frá Orkustofnun á næsta fund nefndarinnar.

3.Úthlutun til fjallskilanefnda 2024

Málsnúmer 2402190Vakta málsnúmer

Kári Gunnarsson fór yfir stöðu umsókna frá fjallskilanefndum og skil á ársreikningum deildanna.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að ekki verði afgreiddar beiðnir um fjárstuðning vegna ársins 2024 hafi umbeðin gögn ekki borist fyrir 15. júní, nk.

4.Lausaganga hunda 2024

Málsnúmer 2403082Vakta málsnúmer

Ábendingar berast alltaf við og við til sveitarfélagsins um lausagöngu hunda í þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins og óánægju fólks vegna óþrifnaðar af þeirra völdum.

Landbúnaðar- og innviðanefnd vill árétta gildandi samþykkt sveitarfélagsins um lausagöngu hunda í þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins og hvetur gæludýraeigendur að kynna sér hana og fara eftir henni til að umgengni verði sem best. Samþykktina er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

5.Loftlagsdagurinn 2024

Málsnúmer 2404253Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:00.